Rúgbrauð
Ég hef aldrei haft neitt sérstak dálæti á rúgbrauði, reyndar þá fannst mér það viðbjóður í 20 ár. Núna fyrir ekki svo löngu ákvað ég þó að gefa því annan séns þar sem að bragðlaukar fólks breytist.
Niðurstaðan á því er eins og hér segir: Ekkert spes brauð, átti erfitt með að koma því niður þó svo ég kúgaðist ekki beint. Gæti hugsanlega vanist því
1 og 1/2 stjarna af 5 mögulegum
Linsoðin egg og síld í dós með tómatsósu
Var gott fyrir c.a. 15 árum síðan en er óætt í dag. Gjörsamlega, gæti gubbað, bókstaflega.
1/2 stjörnu, og það er bara vegna þess að þetta er ekki hundur eða pöddur
Sjávarréttapizza
Smakkaði eina slíka með kræklingi, túnfiski, rækjum og guð veit hverju öðru, osti og svo pizzusósu of course. Alls ekki vont, en ekki minn bolli af te. Of mikið fiskibragð.
2 1/4 úr stjörnu af 5 mögulegum
Omulettur
Ferlega spennandi, holl, fjölbreytileg og ódýr máltíð. Mæli með sítrónupipar, ferskum tómötum, papríku og skinku. Einnig mjög sniðugt að skella sér í salatborð Hagkaupa (besta salatborð landsins) og kaupa sér eitt box af niðurskornu grænmeti og kjötmeti.
3 stjörnur af 5 mögulegum
Humarsúpa frá Ora
Í langflestum verslunum er hægt að fá Humarsúpu frá Ora. Hún kostar um eða yfir 200kr, fer eftir því hvar er verslað. Guðdómleg súpa sé hún bragðbætt með sítrónupipar og salti. Við sérstakan viðburð er þó unaðslegt að skella út í hana koníaki og humarhölum steiktum í hvítlaukssmjéri.
4 stjörnur fyrir hversdagssúpuna, 4 og 1/2 eftir að humar hefur verið settur út í. Af 5 mögulegum
Thai Keflavík
Fór á Thai Keflavík og skellti mér á hádegistilboð. Reyndar alveg óvart og ég veit ekki hernig tilboðið er. Eftir langar pælingar komumst við matgæðingarnir (ég og Jóna) að þeirri niðurstöðu að það væri einn diskur af mat (Hægt að velja úr 5 réttum) og svo hálfur líter kók á þúsund kall.
Staðurinn er ferlega lekkert, án efa flottasti staður Suðurnesja og mjög fín þjónusta. Svo fékk maður að hlusta á fréttirnar meðan snætt var, ekki eitthvað fokkings popptíví eða hvað þetta nú heitir.
Maturinn góður, engin matarlykt, sanngjarnt verðlag, þæginlegir stólar og alls ekkert kalt.
Staðurinn fær 3 og 1/2 stjörnu af 5 mögulegum.
Pylsur og búðingar.
Ekki pylsa í brauði eða Royal búðingur. Heldur matur eins og medisterpylsur, kjötbúðingar, fiskibúðingar, pylsupasta, fiskibollur í dós osfrv osfrv.
Ekki gott. Hefur farið versnandi með árunum. Ófrumlegur og óhollur matur. Er að steikja þetta akkurat núna fyrir Snotru mína.
1 stjarna af 5 mögulegum
Pizza Hut
Er alveg út í hött, Hróa hött.
1 stjarna af 5 mögulegum
Rófur/Rófustappa
Þegar elduð eru svið þá er rófustappan á flestum heimilum algjör nauðsyn. Ég hef aldreið borðað rófustöppu. Aldrei nokkurn tíman. En nú, amk 20 árum eftir að ég smakkaði hana fyrst, þá smakkaði ég aftur og niðurstaðan er eitthvað á þá leið:
Soðnar rófur 2 1/2 stjarna. Gott sætt bragð og ferlega skemmtileg áferð
Rófustappa 1 og 1/2 stjarna. Sykurinn er ekki aaalveg að gera sig hér
Kóríander
Hægt er að fá tvær samlokur hjá Kaffitár sem eru með fersku kóríander á. Annars vegar Túnfisksamloka og hins vegar Heilsuloka. Kóríanderinn eyðileggur þessar samlokur. Bragðinu má lýsa sem þú sért að borða blóm sem á ekki að borða.
Engin stjarna
Sjávaréttasalat á Duus
Fór á Duus og fékk mér Sjávaréttasalat. Var ekkert voða spennt þegar ég sá það því ég bjóst við skelfisk, en í staðin var þetta lúða, steinbítur, lax... held ég.
Oft á tíðum þá langar mér í fisk, og finnst alveg óþolandi þegar með honum kemur lítið salat.. eða ennþá verra, hrásalat. Sjávarréttasalatið var fullkomið og fæst það á 1350kr.
3 og 1/2 stjarna
Weetabix
Hér á árum áður þá leit ég ekki við þessum morgunmat. Man að bróðir minn fékk sér ævinlega svona í morgunmat með ógeðslega miklum púðursykri. Ég ákvað þó að gefa kökunum séns fyrr á þessu ári og var ég bara þónokkuð sátt.
Weetabix með rétt nógu mikilli mjólk til að væta kökurna og smá púðursykri stráð yfir.
3 1/2 stjarna
Kappi
Ný kókómjólk, eða öllu heldur kakómjólk, er komin á markaðin. Hún heitir Kappi og er framleidd af Vífilfelli. Áður en við förum út í fagsmökkunina sjálfa skulum við líta á lógóið. Á því má sjá kú hlaupandi á afturfótunum, skælbrosandi með risavaxnar nasir. Ætla mætti að þeir séu að reyna með þessari mynd að nota sama slagorð og Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi "þú færð kraft úr kókómjólk" Þetta dregur Kappa niður um eina stjörnu, en svo aftur upp um hálfa því að það stendur að þetta sé kakómjólk.
1 stjarna
Hafrakakódraumur
Já! Nú er loksins komið að fyrstu áskorununni. En hún var morgunamatur sem samanstóð af haframjöli, kakói, sykri og mjólk. Ég þurfti sko að taka á honum stóra mínum við það að smakka þetta, enda borða ég ekki hafragraut (en hafrakex er hið mesta lostæti) Hafrakakódraumur er hvorki eins slæmt og það lítur út né hljómar.
1 1/2 stjarna
Safarnir frá Yggdrasil
Aldinlögurinn frá Yggdrasil er eini drykkurinn sem ég sé ekki eftir að drekka að vatni, jöklarauðrunnatei með fullt af límöndu og kaffi undandskyldu. Ástæðan er einfaldlega sú að hann er virkilega bragðgóður og næringaríkr svo ekki sé minnst á hversu mettandi hann getur verið. Ég hef að vísu einungis smakkað þrjár tegundur. Epla og Mangó, Gulrótar (algjörlega óvart og ódrekkandi) og Ananas og Mangó. Ananas og Mangó safinn hefur skorað hæst enn sem komið er og fær því 4 stjörnur af 5 mögulegum!
