Biography
Fáir hafa staðið sig jafnvel um árin og stöllurnar Súsí og Blunda. Frá því þær byrjuðu með dúettinn Sússa og Blunda (2006) hafa þær skemmt landanum manna best. Vegna mikillar fjölgunar í tónlistarlífi Íslands urðu þær hins vegar að leggja upp laupanna, aðdáendum sínum til mikillar mæðu, og finna sér eitthvað nýtt og spennandi viðfangsefni. Ekki vegna dvínandi vinsælda, heldur vegna umhyggju þeirra á litla fólkinu.. það var komi þeirra tími til að skína.
Eftir áralangar bloggnjósnir (þó sitthvoru megin á landinu) datt stöldrunum í hug að gerast spæjarar. Ekki leið á löngu þar til Sússa og Blunda byrjuðu með þáttinn Áttavita (seinna 2006) þar sem þær grófu ofan af, og undan, fíflum samfélagsins. Niðurlægðu þá og útskúfuðu frá þjóðfélaginu. Heyrst hefur að scum Íslands hafi allt flutt erlendis og sé að lemja mann og annann þar.
Ekki leið á löngu þar til teymið varð að hætta með þáttinn. Í þetta sinn ekki vegna keppnisaðila heldur vegna þvílíkra vinsælda og atvinnumennsku í uppljóstrun óþverans. Óþverinn hafði þornað upp, þær voru eins og svampur í polli, eins og túrtappi á lokastigi tíðarhringsins, eins og handklæði sem gleymst hafði á baðbrúninni meðan það var látið renna í baðið.
En nú í ár (síðasta mánuði ársins 2006) hefur verið gefin út þeirra þriðja bók, Láttu mig vera, mamma. Sem árituð verður fyrir utan Eymundsson í Kringlunni þriðjudaginn 19. desember milli 17:00 og 21:30
Einnig verða áritaðar fyrri bækur þeirra Ég hefði ekki átt að vera svona klædd og Ég man það ekki, ég var full.
Íslenzka Bókafélagið
Gáta dagsins
Svar: Þær kúka a.m.k. þrisvar á dag
Afhverju getur fólk ekki veriđ sammála?
Jólatrésala
Jólatréssala
Jólatrjásala
Jólatrjáasala
...og hugsanlega einhver fleiri.
Hambó? ... eđa hambó?
Fór rétt áðan 3 mín fyrir lokun út í ríkið til þess að kaupa bjór. Blótaði öllum fokkings fíflunum sem keyrðu ekki í 60+ km hraða alla leiðina. En ég náði þó í ríkið, með naumindum. Á leiðinni heim langaði mig allt í einu ekki heim svo ég opnaði einn bjór og drakk hann á leiðinni út í Innri Njarðvík þar sem ég ætlaði svo sem ekki að gera neitt. En síðan var svo mikill snjór á malarveginu, og ekkert fólk eða bílar svo mín var bara að taka hambó hægri og vinstri.. þó aðalega hægri. Held ég hafi tekið eina - tvær vinstri hambó. En engin hambó var fullkomin. Sumsé 180° - 360° snúningur. Glatað. En ég skemmti mér konunglega þar til ég tók eftir því að það voru einhverjir menn að vinna upp á þökum húsa. Þá fannst mér þetta smá vandræðalegt..
Í dag er bad hair day
Desperate Housewives 2
Búin að liggja eins og skata upp í sófa, horfi á D.H.2 að éta snakk og þamba vatn í lítratali.. eins lítra tali reyndar. Já og ég át B & J's ís líka. Held að ég sé að overload-a líkamanum með næringarríkum mat.
Frjálst framlag - Topp 20
- Winter Kiss - Naomi Campbell
- Family Guy - 5. sería
- Little Britain - 3. sería
- Green Wing - 2.sería
- Nýja hátalara í bílinn - Læt duga þessa fremri
- Ný gleraugu sem fara mér vel, helst með grænni spöng
- Anton Berg súkkulaði - original.. ekkert fyllt með sultudrasli
- Sléttujárn sem virkar
- 100 íslensk jólalög
- Kennslustund í talningu
- Faðmlög og væntumþykju
ATH. Ekkert endilega í þessari röð.
Fyndiđ fólk IV
Það kemur kona í dag og kaupir sér eitt stykki vatnsflösku. Hún vill fá að borga með dollurum svo ég segi henni að þetta séu tveir. Það eru 12kr afgangs, svo ég gef henni þær þegar hún segir:
Konan: Is there a charity...
hún rekur augun í tips-skálina. En ég teygi mig í abc barnahjálp dolluna og segi:
Erla: Maybe you want to give it to them instead?
Konan: No.. the tip's for you
Ahahahahahahahahahaha
