Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Forsetisráđherra Íslands

31. desember 2006 klukkan 17:12
.. er Geir H. Haarde. Sem væri nú ekki frásögunni færandi nema að ég hafði ekki hugmynd um það!  Ég sat bara hérna í makindunum að lesa visir.is þegar ég sé fyrirsögnina 'Halldór í hádegisviðtalinu á Stöð 2'  Ég ætlaði nú bara að athuga í sambandi við hvað, en þá er það ekki vegna forsætisráðherraembættisins. Heldur vegna þess að hann tekur við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar um áramótin. Hann lét víst af embætti sem forsætisráðherra 15. júní! Hahaha merkilegt hvernig þetta fór algjörlega framhjá mér, en samt vissi ég af hækkandi sorphirðugjaldi í Reykjanesbæ.

Hungursneyđ

30. desember 2006 klukkan 23:36
Ég finn til með vesælis hungruðu börnunum í hinum ýmsu Afríkuríkjum, og líka í öllum hinum löndunum. Í dag þá nefnilega langaði mér í annaðhvort mandarínu eða kjúklingasalat, en ég varð að borða Londonlamb með sveppasósu, kartöflur ofl meðlæti :(

The Swan

30. desember 2006 klukkan 05:07
Þá er það komið á hreint. Hringdi í dag og pantaði tíma hjá lýtalækni. Á að vísu eftir að fara í einhvern viðtalstíma og svo eftir það er það nefaðgerð.
Nýtt nef, nýtt andlit, ný ég - tilbúin hugsanlega feb.- mars 2007.

Ma-ma-ma-mandarína

28. desember 2006 klukkan 20:59

Ef að maður borðar 3 mandarínur á dag hvern einasta dag í heilt ár hefur sá hin sama étið 1095 mandarínur, eða 164kg (mínus börkur)

Note to self

27. desember 2006 klukkan 21:09
Ekki drekka kaffi með sýrópi til að seðja hungrið.

Ekki minn bolli af te

27. desember 2006 klukkan 05:27
Ég hef nú ekki mikið fylgst með One Tree Hill, en ég man að ein í þættinum er alltaf með kveikt á vefmyndavélinni sinni. Svo er hún víst með einhverja síðu sem hýsir upptökur á myndavélinni þannig að hver sem er getur séð live hvað er að gerast inn í herberginu hennar hvenær sem er.
Í gær þá fékk mína vefmyndavél aftur eftir tæplega tveggja ára fjarveru. Ég man þegar ég fékk hana í jólagjöf 2004. Þá var ég álíka mikið á msn og ég er núna, ef ekki meira, svo ég skellti á mig eldrauðum varalit og kveikti svo á myndavélinni. Mér fannst það ógeðslega fyndið. En mér finnst það ekki fyndið, og frekar creepy, að einhver sé að horfa á mann allan liðlangan sólarhringinn. Ferlega Melrose Place-legt atvik.

Hehehe sem minnir mig á eitt:

Kúnni: Do you have any tea, like Melrose's?
Jóhanna: Stelpur, erum við með eitthvað te sem er eins og Melrose Place?

AHAHAHAHAHAHA

Quality street, ţó ţađ sé ekki um nein gćđi ađ rćđa

26. desember 2006 klukkan 02:16
Hér á árum áður var alltaf étin heil ósköp af Macintosh-i (eða hvernig sem það er skrifað) um jólin. Macintosh Quality Street. Í því var einn og einn vondur moli. Svo kom tímabil þar það var sífellt verið að skipta um lit á pappír og lögun á sælgætinu, sem mér fannst hálf ruglingslegt. Í dag þá myndi ég aldrei sjást út í Bónus með 3kg dollu af Quality Street sem nú er framleitt af Nestle! Who would have known. Mér finnst Nestle standa sig vel í kókómjólkurduftinu og Smarties-inu.. en hitt hefur einhvernveginn farið fjandans til. Nú er það eina æta í boxinu appelsínukrókant molinn. Og auðvitað eru bara 5 stykki í öllu boxinu sem ég er búin að éta. Hvers þarf maður að gjalda? Ef að fríhöfnin hefði ekki gefið okkur Siríus konfektkassa þá hefði ég ekkert fitnað yfir jólin.

Ég held að í ár hafi ég fengið skemmtilegustu gjafir síðan ég man eftir mér. (man nefnilega ekkert sértstaklega eftir gjöfunum frá því þegar ég var yngri) Því í ár fékk ég alveg heilan helling af drasli sem ég get notað. Eins og kerti, lotion og ilmvatn, rúmföt og peninga sem ég á að nota til að kaupa mér sjónvarpsborð og hillueiningu. Ohh ég get ekki beðið eftir að flytja út. Þá á ég eftir að fá ennþá skemmtilegri gjafir eins og eldföst mót, hnífapör, vínrekka, glös, skreytingar, o.fl. o.fl. sem gefið er fólki þegar það fyrst flytur að heiman. En að sjálfsögðu yrði ég að halda dýrindis innfluttningspartý þar sem boðið yrði upp á ýmsa  heita og kalda smárétti, kökudrasl og öl eða gos fyrir gesti og gangandi.

Annars væri ég ógisslega geim í mandarínur núna. Eða þá romm & kók, freyðivín og líka bjór.

24. desember 2006 klukkan 06:02

Ég þoli ekki þegar fólk er að fokkings tala við mig þegar ég vill fá að vera í fokkings friði með mér og tölvunni

Jóla Tvífarar

23. desember 2006 klukkan 06:44
Belinda



og.....

...



...

...










....
....





Mr. Hanky The christmas Poo


jólakúkurinn

21. desember 2006 klukkan 04:11
Opnaður hefur verið styrktar- og söfnunarreikningur til styrktar Erlu Daggar Gunnlaugsdóttur og þeim sem þurfa að horfa framan í hana. 
Erla er nánast búin með maskarann sinn, en hann var keyptur í apríl á þessu ári.

Styrktar- og söfnunarreikningurinn er í Landsbankanum í Smáralind, bankanúmer 0132, höfuðbók 26 og er reikningsnúmerið 060577.

Reikningsupplýsingar
Kennitala: 010984-2629
0132-26-060577