Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Klukka

20. janúar 2007 klukkan 04:28
Mamma gaf mér klukku til að hengja upp á vegg in í herbergi. Nú heyrist bara tik tak tik tak tik tak tik tak osfrv. Frekar róandi og þæginlegt.

Frábćr hugmynd!

18. janúar 2007 klukkan 21:09
Vá.. ég held að ég hafi fengið bestu hugmynd lífs míns nú rétt í þessu. Ég skil ekki af hverju mér datt þetta ekki fyrr í hugs. Þetta er lausnin við öllum mínum vanda..

Þar sem ég er náttúrulega matargagnrýnandi, þá væri ekkert sniðugar en að fá smá komment eins og t.d. í gestabókina. Þar sem ég myndi þurfa að smakka ógeð eins og rúgbrauð, hafragraut, síld, osfrv osfrv. Hvað sem ykkur dettur í hug. Svo ef ég þori, þá smakka ég og gagnrýni. Jii ég er ekkert smá spennt!

Ef ég fæ engar undirtektirr þá loka ég síðunni.. nei djók, en ég fer í fýlu. .... í nokkra daga.

Survivor Iceland

18. janúar 2007 klukkan 20:43
Það er ferlega langt síðan ég fór að veiða. Þ.e.a.s. fiska. Með veiðistöng. Sé samt það einhvernvegin ekki fyrir mér að ég sé að fara rota fiskinn sjálf. En slægja hann eftir andlát væri lítið mál. Og svo flaka hann og elda. Annars veit maður aldrei hvað maður myndi gera ef það snérist um líf og dauða.

Tvíburar

16. janúar 2007 klukkan 04:06
Eitt sitt las ég stjörnuspá mína þar sem minnst var á að Tvíburi ætti eftir að hafa góð áhrif á líf mitt. Ég hugsaði með mér "ég þekki engann tvíbura" en svo allt í einu í dag er ég umkringd þeim. Þ.a.m. henni
viktoría

hehehehehe hún er svo fyndin

blómið

Held ađ ég sé ekki sú eina sem sönglar...

16. janúar 2007 klukkan 03:50
Blunt force trauma to the back of the scull

Neytendafélagiđ ehf

16. janúar 2007 klukkan 01:24

Hér á árum áður man ég eftir því þegar mamma var alltaf að hringja í Neytendafélagið þegar hún var eitthvað ósátt við hluti. Eins og kókópöffs eða hnetupoka og slíkt.
Í dag verð ég að gerast kjélling og kvarta. Þannig er mál með vexti að ég var í Samkaup, eina ástæðan fyrir því að ég fer þangað er út af úrvalinu sem þeir eru með, svo ekki sé minnst hversu nálægt.
Allavega, ég var að vinna í þessari verslun fyrir þónokkrum árum síðan og man ég eftir því að aldrei voru fleiri en 4 sem biðu við hvern kassa, þá var kallað á auka manneskju. En þannig er því ekki háttað í dag. Það voru fokkings 2 kassar í gangi og röðin náði framhjá fokkings fatadeildinni. Mér var skapi næst að fleygja draslinu sem ég var með í gólfið og versla annars staðar. Nema að það var ekkert víst að það væri til í hinum búðunum plús það að ég hefði verið alveg jafn lengi að keyra út í hinar búðirnar og velja draslið allt aftur.
Og nei, sagan er ekki alveg búin. Svo voru alltaf einhverjir rítharðar, kellingaálftir og gamalmenni að troða sér fram fyrir í röðina. Ég er nú ekki svo dónaleg að ég skipi þeim aftast í röðina.
Akkurat núna, og þó mun meira áðan, væri ég alveg til í að boycotta þessa blessuðu verslun. Nema að ég hef ekki fjárráð né tíma í það að keyra í Hagkaup í hvert sinn sem mér vantar eitthvað.

Togstreita

15. janúar 2007 klukkan 22:12
að fá mér kaffi?
eða ekki fá mér kaffi?

Giftingar

15. janúar 2007 klukkan 16:44

Það að gifta sig á að vera hamingjustund. Frá því þú segir aðstandendum frá því, játast þínum heittelskaða og svo, tugum ára seinna, deyrð.

Í Glæstum Vonum er þetta engan vegin þannig. Alveg hreint ótrúlegt, í öll þau skipti sem Ridge gifti sig og Eric gifti sig (oft sömu konunum sitt á hvað) Þegar Rick giftist Amber, (sem er núna ástfangin af littla frænda hans)  þegar Deacon og Bridget giftust, (Deacon sem svaf svo hjá Brooke, móður Bridget) og svo núna þegar Nick og Bridget eru að fara að gifta sig. (Nick og Brooke sváfu líka saman)

Hvers þarf fólk að gjalda fyrir það eitt að vera ástfangið?

Ađ setja saman partýdisk

13. janúar 2007 klukkan 23:16

Það að setja saman partýdisk krefst gífulegrar þrauseigju, þolinmæði, ímyndunarafls og víðs smekk á tónlist. Sigurrós er ekki uppáhaldshljómsveitin mín. Oft hef ég lent í því að segja "who?!" þegar rætt er um tónlist í minni návist.

Mér var víst falið þetta verkefni og er ég eitthvað komin áleiðis. Er Nelly Furtado glötuð? Var maneater eina hit-ið hennar? Hvenær hætti Justin Timberlake í N*sync? Hvað varð um spice girls?

Er núna að leita mér ýmissa upplýsinga á netinu. Varð að sjálfsögðu að gæða mér á einum brauðhleif, þurrka rykið af skrifanlegu geisladiskunum, og klæða mig úr buxunum og yfir í náttbuxur.

Hvert er þitt uppáhalds partýlag?

Heitast í dag

12. janúar 2007 klukkan 01:38
  • Búbbarnir - Frábær, ómissandi þáttaröð fyrir alla aldurshópa. Frábært framlag í íslenska þáttagerð
  • Six pensara - Flottasta höfuðfat sögunnar, slær jafnvel combover við
  • Biðraðir í stórmörkuðum - Frábær tíma til þess að slaka á í dagsins amstri, sérstaklega ef að þú ert að flýta þér heim að elda