Klukkan - The Never ending story
Ástarleit
Kćru landsmenn nćr og fjćr
Ég vildi bara tilkynna ykkur það að síðastliðnar vikur hef ég verið með gífurlega vindverki og þ.a.l. engan vegin verið húsum hæf. Því finnst mér það mín opinberleg skylda að skrifa pistil um þaðl hér á internetinu, og um leið tilkynna fjarveru mína þar til annað kemur í ljós.
Takk fyrir allan stuðninginn kæru landsmenn, og takk elsku vinir mínir sem hringdu í mig meðan ég var hvað verst.
Erla Dögg Gunnlaugsdóttir, áhugamaður um mest ómerkilegust fréttir sem fyrirfinnast
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1254663
Heimsókn frá fortíđinni
Það var um kvöld eitt í byrjun veturs er hún fór í heimsókn.
Heimsóknin hennar var áætluð stutt.. en fór langt fram úr áætlun.
Þar var drukkið vodka í pepsi.
Og þar voru drukknir þónokkrir bjórar
Áður en hún vissi af var klukkan slegin þrjú.
Tími til að fá sér smá kríu.
Tveim dögum seinna gerði hún sér grein fyrir því að veskið hennar væri horfið.
Hún leitaði hátt og hún leitaði lágt.
Hún fór langt út fyrir bæjarins mörk.
En hvergi var veskið að finna.
Hún gafst upp.
Endanlega.
Veturinn leið.
Langur var hann.
Kaldur smá, og blautur mikið.
154 dagar liðnir, síðan hún sá veskið.
En allt í einu, svona upp úr þurru, án þess að vera með hugan við veskið góða
Rak hún augun í eitthvað kunnuglegt.
Augun opnuðust upp á gátt.
En hakan rakst í kalt, þurrt malbikið.
Hönd hennar seildist eftir því sem virtist svo óraunverulegt en samt svo nálægt.
Hún teygði hönd sína aftur í tímann.
O-oh! Spaghetti-o
Í kvöldmat fékk ég mér spaghetti gærdagsins, en það var búið að liggja yfir nótt í vatni og var þ.a.l. orðið mjög lint. Sem væri nú ekki frásögunni færandi, nema að ég er að borða það þegar mér skyndilega svelgist á og spaghetti bútur (sem var um sentimeters langur) hrökk upp í nefið á mér og sat þar fastur þar til eftir nokkrar tilraunir, að ég snýtti honum út og henti bréfinu í klósettið.
Símtal
Erla: Halló
Kona: Góðan daginn. Er þetta Erla Dögg?
Erla: Já
Kona: Ég er að hringja hérna frá Gallup og...
Erla: Jááá..! Ég var einmitt að hugsa um ykkur (mjög glaðleg í fasi)
Kona: Já er það?
Erla: Já, er einhvernvegin hægt að skrá mig af þessum lista sem þið hringið í?
hahahahahaha
Brandari aldarinnar

Erla: Þetta er nashyrningur, ekki flóðhestur
Íris: Mér sýnist þetta frekar vera einhyrningur
Jóna: Nei, þetta er tvíhyrningur
Erla: Þetta er þríhyrningur
Tvískipt skilabođ
En núna er ég farin í freyðibað við kertaljós.
