Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

S

18. september 2007 klukkan 23:34

Í dag þurfti ég að ræða við eina manneskju. Ég vissi að hún gæti hugsanlega verið í tíma, og gæti því e.t.v. ekki svarað. Engu að síður skellti ég þessu upp í kæruleysi og ákvað að prufa að hringja..  bjóst svo bara við því að það yrði hringt til baka. En hún svaraði og svona fór það símtal:

M: Hæ (hálf hvíslandi)
Ég: Hæ.. ertu upptekin?
M: ummm nei, nei.
Ég: Af hverju ertu þá hvíslandi?
M: Ég er í tíma.

Mćđgurnar

09. september 2007 klukkan 22:52

Upp á síðkastið hefur mér liðið svolítið eins og lífið mitt sé kvikmynd, líkt og ég sé frekar áhorfandi heldur en leikari. Nema hvað, myndin sem ég er að horfa á er alveg drepleiðinleg, svona svipað og þættirnir Gilmore Girls á RÚV.

Ávextir

28. ágúst 2007 klukkan 20:32
Fólk segir ,,Hvað er málið með grænu eplin í ávaxtaboxunum?" En ég svara ,,Hvað er málið með rauðu mjöl eplin?!"

Fýlupúki

21. ágúst 2007 klukkan 22:16
Um daginn þá var ég í svo svakalegri fýlu að ég fékk þá flugu í höfuðið að eyða öllum færslunum mínum hér á þessari síðu... hehehe. Nema hvað, að maður getur bara eytt einn færslu í einu þannig að ég eyddi bara nokkrum mánuðum.
Núna, nokkrum dögum seinna er mesta fýlan farin og ég búin að borga fyrir kvöldskólann. Nát123 og Enska 503. Þó svo að mig langaði mun frekar í Sögu303 og Rek103. 
Ég er líka búin að bóka ferð til Rússlands. Takmarkið var að fara út 4 sinnum árið 2007 og eftir Rússlandsferðina er þetta komið upp í þrjár ferðir. Þá hef ég nóvember og desember til að fara eitthvert. Frekar tæpt, en gæti gerst.

Munurinn á svan og svan

16. maí 2007 klukkan 20:40



Hér má sjá álft. En hana má vinna víða á Íslandi, algengt er þó að sjá hana á Reykjavíkurtjörn.



Hér má svo sjá hnúðsvaninn. Hann mátti á árum áður finna á Reykjavíkurtjörn og svo í Heiðmörk. Til gamans má geta að hann er meðal þriggja stærstu fleygu fugla heims.

Sorrý!

04. maí 2007 klukkan 22:51

Dagurinn í dag

27. mars 2007 klukkan 23:25

Dagurinn í dag byrjaði á því að ég áttaði mig á því að ég var komin heila fjóra daga fram yfir hin venjulega tíðarhring. Ég er núna búin að taka u.þ.b. fimm þungunarpróf en öll eru neikvæð! :((((


Annars voru hápunktar dagsins þeir að:


Ég fékk sekt fyrir að leggja ólöglega.
Löggan tók fram úr mér á brautinni því að ég keyrði svo hægt.

Netkaup

20. mars 2007 klukkan 23:39
Hver þarf að fara til útlanda að versla þegar hægt er að versla á netinu? En planið er þó að reyna að fara fjórum sinnum út fyrir lok 2007. Þetta verður gott ár, mjög gott ár.

Nýjar myndir

26. febrúar 2007 klukkan 22:53
Loksins update-aði ég blessaða myndaalbúminu.
 http://erlad.bloggar.is/album/30130/

Stundum finnst mér ég endalaust fyndin.

PS. Hefur einhver séð hvað Al Gore er skyndilega orðinn gamall og mun ljótari en hann var??

Menningarleg

24. febrúar 2007 klukkan 18:46

Ég gerðist svo ferlega menningarleg í dag að ég mætti á opnun listasýningar á Kaffitár. Þar gæddi ég mér á þónokkuð mörgum köku-, krembrauð-, og skyrtertusúkkulaðibitum. Svo mörgum að mér er eiginlega enn þá illt í maganum.
Annars var þetta frekar skemmtilegt. Mér þykir alltaf áhugavert að vera viðstaddur á svona atburðum. Þá mæta allar kellingarnar í pelsum og allar kallarnir í ullarfrökkum. Mjög spes. Svo hló ég meira að segja af tveim listakonunum sem sögðu svo skemmtilega frá listasögu sinni. Ef ég ætti 150þús kall sem væri fyrir mér hefði ég hugsanlega keypt eina ljósmynd sem var þarna. Annars faldi ég mig mestmegnins í smökkunar-, og æfingarherberginu þar sem ég las Lifandi Vísindi. Nýjasta kenningin um ástæðu þess að Ingólfur settist hér að er sú að mikið var um rostunga. Þeir voru víst aðalfæðan, og geirfuglar.
Merkilegt, er það ekki?