Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Kengúrukjöt

04. júlí 2006 klukkan 02:57
Á ég að segja þér leyndarmál?

Afhverju? Hvorfĺr?

01. júlí 2006 klukkan 18:58
Ég var að spá....Jeg tænkeded...  Afhverju skrifar sumt íslenskt fólk bloggið sitt á ensku? Ég man nú líka einu sinni eftir einhverri íslenskri stelpu sem talaði alltaf ensku.. þó svo að ég muni nú ekki alveg hver það var. En hún gerði það... og mér fannst það alltaf svo asnalegt. Ætli hún sé líka með bloggsíðu og skrifi það allt saman á ensku? Er enskan meiri töff heldur en  danska?

Kære venner,
I dag gik jeg til jobbed på flughaven, det var massivt got. Og så når jeg komt hjem sovede jeg i tre timer. Det var meget got. Men nu skal jeg vaske mig fordi mit hår er ikke så dejligt.
 
hej hej,
Erle D. Gunnlogsen

Gengiđ eins og ţađ er í dag..

30. júní 2006 klukkan 00:50
USDBandaríkjadollar USD76,98000077,380000
GBPBreskt pund  GBP139,370000140,090000
CADKanadískur dollar CAD69,05000069,470000
DKKDönsk króna DKK12,93500013,013000
NOKNorsk króna NOK12,20500012,279000
SEKSænsk króna SEK10,44200010,504000
CHFSvissneskur franki CHF61,60000061,980000
JPYJapanskt jen JPY0,6625000,666500
XDRSDR XDR113,110000113,790000
EUREvra - Evrópumynt EUR96,46010097,040700


Og til gamans má geta að fari Evran einungis upp um 1 krónu hefur hún aldrei í sinni 9 ára sögu verið jafn há.
Fögnum 10 ára afmæli Evrunar 3. janúar, 2007 með stæl.

TILKYNNING TILKYNNING

27. júní 2006 klukkan 22:44

Hverjir koma í grill til Sveinu sóðabrókar (hahahahahahahaha) á Laugardaginn? Mæting þegar þú ert reddí eftir vinnu eða frí með þínar pylsur eða hamborgara.. nema þið viljið nautalundir. Ég elska grillaðan lauk sem væri ekki frásögunni færandi nema...  það er það ekki.

Skráning í kommentin.

 

90210

27. júní 2006 klukkan 06:54
Guð minn góður. Beverly Hills er ömurlegasti þáttur í sjónvarpi. Veit ekki hvort er verra, 90210 eða HM. Þetta er eins og að horfa á klukkustunda langa auglýsingu um forvarnir. Ótrúlega oft sem þar er minnst á það að drekka sé slæmt og mamma hennar Kelly sé að jafna sig (Veit einhver á hverju??? Dópi eða drykkju) ... og þetta er bara eftir 1 þátt. En núna er ég farin að horfa á Melrose Place.

Erla auli

26. júní 2006 klukkan 22:10

Maður bíður eftir afgreiðslu á Stapabraut þar sem ég ræddi við Írisi um hvaða te ég ætti að taka með þegar skyndilega...

Maðurinn lýtur á mig og segir hátt og snjallt.. án þess að vera ókurteis "Góðann daginn!" Ég lýt á hana brosandi og segi "Góðan dag" Sveina var nefnilega í þessum töluðu orðum að klára að afgreiða aðra manneskju þegar hún heyrir þetta og segir við manninn "Ég er að afgreiða" Og ég, ætla náttúrulega að vera voða næs og afgreiða manninn bara og segi brosandi "Ég get svo sem alveg afgreitt ykkur, en þar sem ég er ekki á launum verð ég að leggja smá prósentu ofan á verðið svo ég fái greitt fyrir þetta" Í þessum töluðu orðum kemur Sveina og segir einhvað sem ég man ekki því ég var svo hneyksluð á þessum ófyndna brandara mínum að ég var að deyja úr skömm.  Ég á það nefnilega voða mikið til upp á síðkastið að tala áður en ég hugsa.. og ég sem hélt að það væri bara orðatiltæki.

Hefnd

25. júní 2006 klukkan 23:33
Ég er (samt ekki í þessum töluðu orðum) að horfa á mynd í sjónvarpinu þar sem minnst var á það að hefnd væri sterkasta hvöt mannsins. Sem ég gæti svo sem vel trúað. Einu sinni var ég svo hrikalega reið út í eina gæru að ég fór heim til hennar að kveldi til og tók allt loftið úr einu dekkinu.

Anywho, aftur að horfa á myndina.

Mér langar í ís

18. júní 2006 klukkan 00:01

Ég var búin að hlakka alveg gífurlega til þess að fara bara einhvað út en svo þegar ég loksins kom mér af stað var ég engan vegin upplögð. Reyndi endaust að koma mér í gírinn, sem tókst stundum en alltaf drapst á. Bilað, alveg eins og karíókíoð þegar maður fékk bara 3 stig fyrir frábæra frammistöðu í söng.
Allavega, ég ásamt restinni úr vinnupartýinu stöndum inni á tómum Traffic, klukkan er 2, tómur fyrir utan stelpufótboltalið með eitt sverð og sjóræningjahatt. Mér langar ekkert frekar en að fara heim.. en reyni engu að síður að lyfta mér upp.
Klukkan að nálgast 3, ég kem puttunun mínum vel fyrir milli klósettahurðarinnar og vegsins. Síðan lokast hurðin á puttaneglurnar. Mjög vont, samt eiginlega enginn marblettur þannig að ég get ekki ímyndað mér sársaukann eftir alvöru klemmu.
Klukkan rétt rúmlega 3 og við stöndum allar inn á klósetti. Ég með bjór í hönd, sem er næstum búið. Finnst það frábær hugmynd að plata Jónu til að hella yfir og á Írisi sem sat á klósettinu, tillagan er samþykkt en þó er ekki hellt miklu. Þannig að ég slæ í olnbogan. Íris kemur fram öll í bjór. Alveg hreint drepfyndið. Fyndasta sem hefur gerst í langann tíma. Svo er náttúrulega hefnt sín, á mér! Hvað gerði ég? Jóna var með glasið í hendinni. Samt mjööög fyndið.
Klukkan orðin 3:40, og ég gefst endanlega upp og byrja að labba heim í rigningu. Var rétt hálfnuð þegar allt í einu... dett ég hehehehheehehe. Ætlaði svo að skrifa ljóð um atburðinn en gerði það ekki því það var slökkt á tölvunni.

Draumar

13. júní 2006 klukkan 18:42
Mér dreymdi mikinn, langan og fáránlegan draum í nótt. En hann var einhvað á þennan vegu;

Ég var sem sagt að fara til danmerkur með pabba mínum. Flugmaðurinn var kona og ég sat beint fyrir aftan hana og var þá að spyrja hana út í það hversu hratt flugvélinn færi. (Sem er nokkuð skrítið því að ég spurði eina flugfreyju að þessu um daginn, þ.e. sem sagt rúmlega 1000 þegar þau fljúga frá ameríku með golfstrauminum til íslands, því þau fjúka bara áfram, en svo aftur á móti er metið rétt rúmlega 800km á klst þegar þau fljúga á móti vindi) Nema hvað, flugkonan gleymdi að taka á loft því hún var svo upptekin í því að tala við mig. Og ég man ekki afhverju en mér var hent út, sem ég var engan vegin sátt við. Svo stóð ég þarna út á miðri flugbraut þegar ég sé flugvélina taka á loft og þar næst hrapa til jarðar og allir um borð deyja.

 

Að dreyma flugvél sem sveimar fyrir ofan mann er fyrir mikilli breytingum á lifnaðarháttum. Sé dreymandinn sjálfur að fljúga vélinni verður hann fyrir miklu láni í starfi sínu. Stríðsvélar sem losa frá sér sprengjur boða andstyggilegar fréttir. Að detta út úr vélinni er fyrir algerri kúvendingu á lifnaðarháttum þínum, hvort það er til hins betra eða verra fer eftir öðrum táknum draumsins.



Svo er allt  í einu kviknað í flugstöðinni, og  allir glóa og ég reyni að  forðast þá en á erfitt með að hreyfa mig. Nema hvað, ég hitti einhverja stelpu og ég segi við hana "Hvernig slappstu? Ég hélt að ég hefði verið sú eina sem fór frá  borði" Þá var húnsem sagt allt í einu ferðafélagi minn en ekki pabbi. Anywho, við förum og  finnum okkur gistingu í ógeðslegu húsi,sem er ekki bara skítugt heldur er draugagangur þarna líka. Og engin húsgögn, ég reyni þá að leita að húsgögnum í öðrum herbergjum húsins sem ekki voru í notkun sökum mikils draugagangs. Er að sjálfsögðu skíthrædd en fer engu að síður inn í eitt herbergið þar sem ég kveiki ljósið en ljósið flöktir. Svo sé ég einhverja hreyfingu og segi "Halló, ertu þarna" "Hver er þetta" o.s.frv. o.s.frv. Þegar skyndilega er gripið um hálsinn á mér, ekki fast,  en það er ekki  sleppt og ég öskra "Hvað er  þetta!! Hvað er þetta!!"  "Þetta er mús" segir einhver. En ég hugsa með mér "Þetta er engin helvítis mús" og  í því vaknaði ég. Jafn raunverulega  snertingu hef ég aldrei  fundið í draumi.

Ef þú bíður lægri hlut í glímu eða stympingum er það fyrir feigð, en ef þú vinnur máttu búast við veikindum

Það er lítið að marka þessar draumráðningar síður og bækur..

Veđriđ

11. júní 2006 klukkan 01:28
Ég er spá og spekúlera í því hvert skal halda með Dudu friend nú á tímabilinu jan. - mars 2007. Því þannig er mál með vexti að okkar fannst það snilldarhugmynd að stinga frostið af og liggja í sólinni með bjór í hönd í ca tvær vikur. En það er galli í gjöf Njarðar... hann er sá að ég tími ekki að borga 147þús einungis fyrir ferð + gistingu og landafræðin/ímyndunaraflið er nú ekki alveg að virka sem skildi.

Eina sem mér hefur dottið í hug, en hef heldur ekki fengið samþykkt eru;

Kosta Ríka
Mexíco
Kúba
Suður-Afríka
Ástralía (held samt að það sé ekki sólbaðsveður þar + það eru köngulær og eitraðar slöngur..)

En ég rakst líka á þessa frábæru síðu http://www.bbc.co.uk/weather/world/city_guides/index.shtml?show=a_guides
En á henni er að finna meðalhita, úrkomu osfrv. hvers mánaðar í alveg FULLT af löndum.

Og í þetta skipti ætla ég að standa við þetta.