Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Kökubakstur

08. nóvember 2007 klukkan 22:08

Vegna tímaskorts þá hef ég tekið skref afturábak í kökubakstri. Ætli ég hafi í raun ekki verið að reyna að ferðast aftur í tímann, til þess að sjá hvenær ég breyttist og varð að þeirri manneskju sem ég er í dag. En því miður þá misheppnaðist tímaferðalagið mitt eitthvað örlítið og áður en ég vissi af var ég að hræra saman smjöri, vatni, eggjum og kökumixi frá Betty Crocker.
Svona líkt og að ætla að fara styttri leiðina en svo villast. Líkt og reyna að fjarlægja fullt af bollum af borði í einni ferð, en síðan missa þá í gólfið, líkt og þegar maður reynir að kynnast nýju fólki sem síðan misskilur allt sem þú segir og finnst þú óþolandi bara vegna þess að þú gast ekki verið þú sjálfur.

Síðan smyr ég kökuna með sætu súkkulaðikremi og skreyti líklegast með jarðaberjum. Líkt og þú myndir gera ef þú værir í heimsókn hjá tengdó.

Namminamminamm

03. nóvember 2007 klukkan 20:22
tuna

sluuurrp sluurrp

Draumur

02. nóvember 2007 klukkan 09:48
Reglulega þá dreymir mig hálf tilgangslausa drauma og hef ég þá þörf fyrír því að setja þá á opinbera síðu sem þessa, þó svo að ég geri það nánast aldrei.
Í nótt dreymdi mig að ég hefði labbað inn á þvottahús þar sem var voða hlýtt og notalegt og allur þvotturinn var þurr og ilmaði vel. Því fór ég inn á www.dreammoods.com og sló in warm og svo hot, en niðurstaðan var þessi:
Hot
To dream that you are hot, signifies passion and emotion. You are lusting after someone. It may also reflect a situation that is potentially dangerous. The dream may also represent a person who is great looking. Perhaps you are feeling beautiful.

FRUMSAMIĐ LJÓĐ

26. október 2007 klukkan 21:04
Þetta ljóð samdi ég eftir langann vinnudag og má lýsa hugarástandi mínu þá. Gætið þess þó að lesa það líkt og þið séuð loksins búin að vinna en nennið ekki heim.
Ljóðið er samið í ferskeytlu formi, en þó eru stuðlar og höfuðstafir ekki til staðar.

Sit hér ein og reyn'að ríma
Álfur út úr hól
Orðin alltof sein í tíma,
me no hablo espanol

Whatever

22. október 2007 klukkan 20:24

Enska 503 kláraðist fyrir c.a. 2 vikum. Ég (og aðrir samnemendur) fengum frest út til 1.nóv til að klára verkefnið.
Allavega, þá ligg ég eins og skata hérna með tölvuna í fanginu að gera allt annað en að læra. Held að ég hafi troðið inn max fimm mínútum núna rétt í þessu og svaraði 1 spurningu. Þá hef ég í það heila eytt c.a. 30 mínútum síðastliðin mánuð. Í stað þess að læra læt ég allt fara í taugarnar á mér, ég svaf c.a. 40 klst fös, lau og sun og ég er búin að horfa á ömurlegustu þætti í heimi. Ég vil benda fólki að horfa á 7th heaven sem er hugljúfur þáttur á Skjáeinum um fjölskyldu sem samanstendur af Pabbaprest, mömmu sem missti mömmu sína, svakalega fyndinni 5 ára stelpu, gáfuðum og góðhjörtuðum 7 ára ljóshærðum strák sem öllum finnst þroskaður miðað við aldur, 14 ára stelpu sem lennti í hit and run og getur kannski aldrei aftur spilað körfubolta en fyrirgefur engu að síður stráknum sem keyrði á hana og c.a. 17 ára síðhærðum elsta bróður sem er ógeðslega hrifin af heyrnalausu stelpunni. Sjitt.. þessi þáttur er æði. Svo eru náttúrulega allir í kringum þetta fólk engu síðri.
Sá líka Ertu skarpari en skólakrakki sem er ömurlegur þáttur með hundleiðinlegum þáttastjórnanda og montnum krakkaandskotum!

Og nei, ég nenni heldur ekki að setja inn myndir frá Rússlandi.

Góđ mynd..

19. október 2007 klukkan 12:34
helger, astrid, sonja, erla, joe

Ég og David Schomer

15. október 2007 klukkan 21:58
Hér sit ég með tölvuna í fanginu eftir að hafa komið heim úr óvæntri vinnu. Fór í dag til þess að mala baunirnar mínar sem ég ætlaði alltaf að smakka, lífrænt Gvatemala og svo venjulegt. Lennti svo í nokkrum kaffisamræðum, langa sögu stutta: Ég að horfa á Latte art vídjó í sjónvarpinu og svo á YouTube meðan ég drekk pressukönnukaffi úr nýja kaffibollanum mínum. Gæti kvöldið verið fullkomnara?



latte art

lífrænt gvatemala

pressukönnukaffi

nýlagað kaffi

Extreme Makeover

08. október 2007 klukkan 22:05

Lét laga á mér eyrun. Eru núna að gróa.

ectc

Besta súpa í heimi

24. september 2007 klukkan 21:13

Góðkunningi pabba minns á strák á sama aldri og litla frænka mín. Þess vegna fer pabbi nokkuð oft með hana í heimsókn þar sem krakkarnir tveir leika sér saman. Þennan strák á vinur pabba með konu af erlendum uppruna, hún hefur alist upp í allt annari menningu heldur en við og skilur líka mjög litla íslensku.
 
Einn dag þegar pabbi var með frænku mína í heimsókn hjá hjónunum kallar konan á börnin "Krakkar, súpa!" Börnin tvö þutu inn í eldhús og byrjuðu að gæða sér á súpunni. Eftir smá stund þá fer pabbi inn í eldhús og sér litlu frænkum mína háma í sig súpuna líkt og hún hafi ekki fengið að borða svo mánuðum skiptir. Þessi súpa var mjög girnileg í útliti, gul að lit með muldu brauði yfir. "Er þetta heimatilbúin súpa?" spyr pabbi. "Af hverju?" spyr konan. "Nú, vegna þess að þeirri litlu þykir súpan svo rosalega góð. Ég verð að búa svona til handa henni heima!" Konan svarar "Þetta er bara pakkasúpa, þessi hérna"  og réttir fram Euroshopper Bernaise sósu.

Vax, karíókí og bjór

22. september 2007 klukkan 19:20
Ég sit hérna í stofunna, með bjór í annara og míkrafón í einari, er nefnilega að fara að vaxa á mér lappirnar í fyrsta skipti. Við sjáum til hvernig það gengur. Set inn myndir af því á eftir.