Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Muuuu

23. ágúst 2006 klukkan 02:38
Hvað er ´´i gangi? Afhverju gerist þetta ´´i hvert einast skipti sem ´´eg ætla að gera kommur yfir viðeigandi stafi?
Afhverju fer það ´´i taugarnar ´´a m´´er að myspace virki ekki þ´´o svo að ´´eg noti það eiginlega ekkert?
M´´er l´´iður eins og hval. En samt vel ´´uthvildum hval... eða sæk´´yr. Afkvæmi hvala eru kallaðir k´´alfar... alveg eins og hj´´a beljunum. Get ´´eg þ´´a skrifað/sagt muuuuuu þegar ´´eg er að leika þann hval sem m´´er l´´iður eins og?

Nćrbuxur i buxunum

22. ágúst 2006 klukkan 23:04

Eg er buin að vera i frii i dag og svo i gær lika. Og mer hefur tekist að aorka ymsu. Eins og að semi taka til i herberginu minu og þvo þrjar þvottavelar osfrv osfrv. Sem væri nu ekki frasögunni færandi nema að eg sat herna við tölvuna og fann fyrir einhverjum einhverjum hlut i vasanum, set hendi ofan i og hugsa með mer "hvað er þetta eiginlega?!" Svo dreg eg það ur vasanum og viti menn!  NÆRBUXUR!! HAHAHAHAHAHA !!!!!!
...reyndar minar.. og hreinar. Engu að siður drepfyndið og furðulegt. Eg man amk ekki eftir þvi að hafa troðið þeim þangað..

Martha Stewart

14. ágúst 2006 klukkan 03:53
Ég hata hana, heimska kellingargæra

"ég á fullt af vinum, og þeir eru frægir og ríkir"
"ég á ógeðslega mikið af peningun"
"mér finnst gaman að þvo þvott"
"ég á svo stórt hús, á eyju utan við maine að ég get hýst 30 manns! ..og ég hef gert það oft, því ég á svo marga vini"
"engin eldar eða bakar betur en ég"
"ég fæ endalausa ametjöra í þáttinn minn sem kunna ekki að föndra"

ohhh!!! Er hún að grínast? Er Ameríka að grínast? Hún fór í fangelsi fyrir fjársvik en samt elskar Ameríka hana ennþá... þeir meira að segja fengu hana í nýjan þátt "The Apprentice - Martha Stewart: Where you'll learn how to steel"


og samt, og SAMT horfi ég frekar á þetta heldur en fréttirnar? Er ég með sjálfseyðingarhvöt eða hvað?? 

Do not eat

14. ágúst 2006 klukkan 03:45

Maður sem vinnur ekki alveg eins og aðrir, er hugsanlega ekkert að mæta í hina svokölluðu 'vinnu' svo kannski sem mánuðum skiptir.  Er kannski bara rithöfundur sem er búinn að vera að vinna í þessar skáldsögu eða þvíumlíkt svo kannski sem árum skiptir, vonast til þessi bók muni setja nafn hans í sögubækurnar. Sem situr einn heima alla daga, skreppur út í búð eftir mjólkurfernu osfrv osfrv. Verður hann á endanum sérvitur? Skrítinn. Eða er hann bara hann sjálfur? Margir verða nefnilega eins og fólkið í kringum þá, það er búið að rannsaka það, það var þáttur á Discovery! ....sem ég sá ekki. Allavega. Ég var að lesa ferlega fyndna færslu, sem ég hafði að vísu lesið einu sinni áður, lýsingin að ofan á nefnilega að hluta til við þennan mann.. færsluna ásamt fleiri öðrum má finna á www.thorsteinngudmundsson.com 
en hún er svohljóðandi;

Ég er enginn sérstakur bollumaður en á mánudaginn síðastliðinn breytti ég út af vananum og keypti mér bollu í bakaríi til að hafa með morgunkaffinu. Maður á það til að gera eitthvað svona gersamlega fríkað í lífinu til þess að geta upplifað sig eins og maður búi í útlöndum.
Krakkarnir voru komnir í skólann, konan í vinnuna og ég var einn eftir heima en ég hef ekkert unnið eftir að ég fékk gúlinn. Gúllinn hefur í raun umturnað lífi mínu.
Ég settist við borðstofuborðið með afskaplega fínan kaffibolla og bollu. Mér var litið á bolluna og hún horfi á móti mér. Það var andlit á bollunni og það var andlit Maríu Mey. Ég þekki hana svo sem ekki neitt enda er hún löngu dauð en ég var samt sem áður viss í minni sök. Þetta var engin önnur en María Mey. Súkkulaðið var hárið á henni og nefið var úr rúsínu. (Þetta var rúsínubolla með súkkulaði). Og undir myndinni voru tölustafirnir 77.
Ég borðaði bolluna og hugsaði ekkert meira um þetta en þetta atvik rifjaðist upp fyrir mér þegar ég átti erindi í verslun á Laugaveginum og gekk fram á dyraskiltið á Laugavegi 77. Þá áttaði ég mig á skilaboðunum: Guð er hommi.



Go on go on come one leave me breathless!!

13. ágúst 2006 klukkan 01:20
(titillinn, eftir hljómsveitina the corrs= írsk.. got it?)

Eftir nokkra daga fæ ég að vita hvort ég fæ að fara með til Írlands á vinnutengd námskeið dagana 8-10 október. Ætla ég mér að drekka bjór alla daga og lenda í fótboltatengdum slagsmálum á einhverjum pöbb í leiðinni. Ef ég fæ ekki að fara fer ég í ógeðslega mikla fýlu og auglýsi hér með eftir ferðafélaga, hvert sem er, í viku á þessu ári. Skilyrði eru þau að bjór verði drukkinn hvern einasta daga og heildarkostnaður uppihalds verði ei meiri en 100þús (þá er persónuleg eyðsla, í tæki, tól, fatnað, snyrtivörur osfrv osfrv ekki talinn með)
....En, ef ég fæ að fara og fer svo að taka þátt í innanhúsmótum og þvíumlíkum og myndi hugsanlega standa mig bara ágætlega þá er ég með hugmynd að frjálsum drykkjum.


Black Death Glacier Coffee
Einfaldur expresso
1/2 skot karamella
Mjólk
30cl Brennivín
-Hrist með klökum

EÐA

Cervesa Con Panna


Bumbubúi

12. ágúst 2006 klukkan 00:35
Ég er ólétt!!!!!!!!



...djók. En engu að síður þá er umræðuefnið þessu tengt. Síðastliðna mánuði hef ég stundað einhversskonar blog-stalkeringu á fjölda síðna. Ýmist hjá fólki sem ég þekki, eða friend of a friend og finnst skrifa skemmtilega, og svo líka frá fólki sem ég veit hverjir eru og skrifa gjörsamlega outrageous blog. Ég er aftur á móti ekki að fara að deila þessum síðum hér á netinu þar sem fólkið gæti komist að því og haldið að ég væri einhvað krípí.
Nema hvað, ólétta, þungun. Síðan hvenær varð það úr tísku að kalla ófætt barn ófædd/ur? Svo virðist sem allir séu með barni þessa dagana og tískuorðið bumbukrílí og bumbubúi poppar upp á (nánast) hverri einustu síðu! Mér finnst ekkert hallærislegra í heiminum... þessa stundinu þ.e.a.s.

....svo gæti líka verið að að þetta hafi alltaf verið notað, og ég hafi bara nýlega tekið eftir þessu?


ööööööööööhhh ég er farin að kaupa mér ananassafa

anananana nananana nananana nananana ananasafa

Pæling;
Ætli sama manneskjan hafi skýrt...
Ananas og
Banana

?

Ertu ekki ađ grínast..!!

09. ágúst 2006 klukkan 01:49
...hvað kanill er ógeðslega góður á kjúkling?? Héðan af mun ég nota kanil í hvert mál. Eins og flestir vita þá er kanill mikið notaður í indverska matargerð. Svo mér langaði í smá svona indverskan mat og notaði kanilin í aðeins meira mæli en venjulega og nú er ég algjörlega fallin. Kanil í öll mál! .... nema kannski ekki á nautakjöt eða annað rautt kjöt... eða hvað?

Brandarahorn Erlu

07. ágúst 2006 klukkan 01:18
Við erum upp í flugstöð þegar flugfreyja( dv van)  bítur í nýbakað, volgt croissant. Undireins byrjar hún (dv van) að blaðra vinkonuna (La) um það þegar vinkonan (La) kemur svo á kassan til mín og minnist á það þegar ég lýt upp og segi;

Ég "Já, við vorum að baka"
Flugfreyja (La) "já æðislegt"
Ég "Við erum alltaf með kökur í ofninum  ... ef þú veist hvað ég meina"
Flugfreyja "já... uhhh jááá"


hahahahahahaha

Pósturinn Páll og kötturinn Njáll

04. ágúst 2006 klukkan 04:19

Ég elska svona daga þar sem ég þarf ekki að gera neitt.


  • Sofa til hádegis.
  • Fer í mjög langt bað
  • Dansa í herbergjunu mínu á nærfötunum einum saman
  • Borða ís í morgun-/hádegismat
  • Búa mér til kokteil sem ég rakst á (Screaming orgasm.. ekkert neitt einhvað það gott samt)
  • Hringt í mann og farið út í Bónus og keypti mér barnaolíu og sterkar rískökur
  • Náði í kaffi og te og fékk mér næstum því macchiato. S.s. espresso með c.a. helmingi minni mjólk en í macchiato mínus froða. I LOVE IT.
    Pæling; Skyldi ég, sem starfsmaður Kaffitárs fá illt augnaráð þegar ég væri að tala um kaffi og te.. nema að ég myndi óvart missa út úr mér Te&Kaffi? 
  • Pantaði pizzu en náði að drekka 2 bjóra fyrst, því það var einhvað rugl hjá Dominos. Rúntaði út í Garð og gegnum Sandgerði með bróður mínum. Hlustaði á Janis Joplin og svo Damien Rice... very very nice
  • Kom heim, át síðan yfir mig og fór í karíókí í 3 klukkutíma.
  • 22:50 bannar mamma mér eiginlega að vera í karíókí... því litla frænka var að reyna að sofa.

HEYRĐU! Hrásalatiđ mitt er hrátt!!! ..og sushi-iđ líka!

03. ágúst 2006 klukkan 04:18




Freyðivín
Jurtate
Bjór
Vatn
Malt
Jöklakaffi
Macchiato
Nigaragúa


.... og bananabrauð með smjéri

Kjúklingur + hrásalat í kvöldmatinn... núna er mér flökurt. Veit ekki hvort það sé vegna óeðlilegrar þreytu eða eða eða
mEÐAl

meðalmanneskja = manneskja sem býr til meðöl

Meðöl; að meðala = Athöfn þar sem margir drekka öl

...ef mér er ekki flökurt.

Flakari flakar fisk;
Hann hefur flökurt allt karið

.... ef mér er ekki flökurt vegna þreytu þá vildi ég heldur vera svöng. En ekki myndi ég vilja vera svöng og flökurt.

Eigi veit ég það svo gjörla.... eða hvað það var sem hún sagði

je mappella erla, je detest le francais. Comme tu tappelle? ohh qui! je'dore musique og/et (?) je'dore croissant. Je ne pa parle francais! Ohh.. no, no café au lait

au revoir, bon voygage!

sil vous plai