Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Waiting to be discovered.

03. apríl 2008 klukkan 18:29

Dúllídúllídúll!!

16. mars 2008 klukkan 04:14
íris neri

ohh hún er svo klár!!!

Stjörnuspá dagsins

16. mars 2008 klukkan 04:11
MEYJA 23. ágúst - 22. september
Hlutverk þitt í lífinu er mikilvægt. Klæddu þig upp fyrir bíómyndaútgáfuna að því og bættu hljóðrásinni við um leið. Þú gerir allt betur við undirleik.

Jahá

01. mars 2008 klukkan 23:18
frétt

blablablabla... Hverjum er ekki sama um fréttina? Það sem er töff og fyndið er myndin, en bara ef fyrirsögnin er lesin líka.

Nýjustu fréttir!

05. febrúar 2008 klukkan 21:51
Lítið hefur nú á daga mína drifið síðastliðin 2-3 ár eða svo. Þessi síða og aðrar bloggsíður hafa þó alltaf verið í mínum hjartarstað og hefur mér fundist ég knúin til þess að hripa niður eitthvað hundleiðinlegt, ómerkilegt rusl.. en þó langoftast eitthvað sem mér finnst vera fyndið.
Oftast er það þó þannig að það er eitthvað sem mér þykir fyndið sem ratar inn á netið. Stundum óbein tilvísun í önnur blogg en stundum bara algjör vitleysa. Að þessu sinni verð ég að leyfa þeim sem hugsanlega gæti rekist á þetta að gera það upp við sig.


Undanfari er útskýring á eftirfarandi

Það sem hefur verið að gerast í mínu lífi er:

solitaire

Félag áhugamann um risaeđlur í sjó, vatni, lofti og landi.

08. desember 2007 klukkan 11:00

F.Á.R.S.V.L.L. hefur lengi verið viðloðandi við hin ýmsu störf. Sem dæmi má nefni er nokkrir félagsmenn söfnuðu sér fyrir ferð til Galapagos eyja til að skoða Komodo drekann í eigin persónu. Næst ferð F.Á.R.S.V.L.L. verður til Svalbarða, en félagið hefur lengi fylgst með fornleifagraftri á þar. Hér má t.d. sjá nýjustu fréttir þaðan http://www.visir.is/article/20071208/FRETTIR02/112060251

Ég tel þó að fréttamaðurinn fari ekki alveg með rétt mál. Vissulega var plesiosaurus ekki gæft dýr, en það var pliosaurus, afbrigði af plesiosaurus, sem var svokölluð grameðla hafsins.  Á Wikipedia er sagt: ,,Pliosaurs were more heavily built, more streamlined, faster and fiercer than other plesiosaurs, and were suited to catch fewer, larger meals with their massive jaws and rows of sharp teeth up to 25 cm long"

http://en.wikipedia.org/wiki/Kronosaurus  Hér á undan er greinin sem ég vitna úr, og er hún um týpu af pliosaurus sem kallast kronosaurus. Svo er náttúrulega hægt að leita út frá þessari grein af fleiri skemmtilegum, fornsögulegum dýrum.

Hér fyrir neðan má svo sjá tvær teiknaðar myndir af þeim.

eðla

Ég verđ ađ segja..

26. nóvember 2007 klukkan 21:45

.. að ég skil ekki hvað fólk sér við Heroes þættina. Þetta er það leiðinlegast sem ég hef nokkurn tíman horft á.. frekar horfi ég á 7th Heaven.

TILKYNNING TILKYNNING

16. nóvember 2007 klukkan 16:49

Niðurstöður Rannsóknarinnar

 Flokkar Túnfiskur í olíu Túnfiskur í vatni
 Bragð Ágætt Ágætt
 Áferð Fullnægjandi Frekar þurr
 Fylling Fullnægjandi Fersk, en vantar e-h
 Selta Fullnægjandi Aðeins meiri en þarf
 Mýkt Fullnægjandi Gott
 Safaríkt Fullnægjandi Fullnægjandi
 Beiskt Á ekki við Á ekki við
 Sætt Örlítið Fullnægjandi
 Overall Mjög gott Mjög gott


Niðurstöðurnar eru semsagt þær að mér þykja báðar tegundirnar góðar. Ég hugsa þó að betra sé að borða túnfisk í vatni með einhverju eins og sólþurrkuðum tómötum meðan ég myndi borða túnfisk í olíu einan og sér.

Afţreyingar

16. nóvember 2007 klukkan 16:12

Að finna sér eitthvað til afþreyingar er allt annað en sjálfsagður hlutur, því það sem er afþreying fyrir mann einn daginn getur verið kvöl þann næsta. Sum kvöld gæti maður látið nægja sér eitthvað á borð við bók og ljúffengt pressukönnukaffi eða freyðibað með freyðivíni og svo naglalakka neglurnar eftir á. Önnur kvöld gætu endað þannig að maður þyrfti að fara í bað eftir þau.
En spurning dagsins í dag snýst ekki um afþreyingar kvöldsins eða slagveðursins, heldur hvað er hægt að gera að degi til sér til dægradvalar. Ef við ímyndum okkur nú að við séum stödd á stór reykjavíkursvæðinu þá er eftirfarandi svona það sem mér dettur einna helst í hug akkurat þessa stundina:

1. Skoða í búðir
2. Drekka bjór
3. Fljúga erlendis

og þar með er listinn tæmandi.

Í næstu viku mun ég fara yfir hvaða kökur væri gott að baka um jólin og hvaða kerti henta hvaða aðventukransi.

Í þar næstu viku fer ég svo í það hvaða efni á ekki að hafa nálægt opnu kertaljósi og hve nauðsynlegt það er að hafa reykskynjara.

Á þrettándanum fer ég svo í það hvað ég vil alls ekki fá í jólagjöf

Íslensk söngkona međ stjörnustćla í flugsstöđinni

14. nóvember 2007 klukkan 18:55
Þetta var súrelíaskasta reynsla sem ég hef gengið í gegnum