Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Erla auli

26. júní 2006 klukkan 22:10

Maður bíður eftir afgreiðslu á Stapabraut þar sem ég ræddi við Írisi um hvaða te ég ætti að taka með þegar skyndilega...

Maðurinn lýtur á mig og segir hátt og snjallt.. án þess að vera ókurteis "Góðann daginn!" Ég lýt á hana brosandi og segi "Góðan dag" Sveina var nefnilega í þessum töluðu orðum að klára að afgreiða aðra manneskju þegar hún heyrir þetta og segir við manninn "Ég er að afgreiða" Og ég, ætla náttúrulega að vera voða næs og afgreiða manninn bara og segi brosandi "Ég get svo sem alveg afgreitt ykkur, en þar sem ég er ekki á launum verð ég að leggja smá prósentu ofan á verðið svo ég fái greitt fyrir þetta" Í þessum töluðu orðum kemur Sveina og segir einhvað sem ég man ekki því ég var svo hneyksluð á þessum ófyndna brandara mínum að ég var að deyja úr skömm.  Ég á það nefnilega voða mikið til upp á síðkastið að tala áður en ég hugsa.. og ég sem hélt að það væri bara orðatiltæki.

Skrifa athugasemd