Draumar
13. júní 2006 klukkan 18:42
Mér dreymdi mikinn, langan og fáránlegan draum í nótt. En hann var einhvað á þennan vegu;
Ég var sem sagt að fara til danmerkur með pabba mínum. Flugmaðurinn var kona og ég sat beint fyrir aftan hana og var þá að spyrja hana út í það hversu hratt flugvélinn færi. (Sem er nokkuð skrítið því að ég spurði eina flugfreyju að þessu um daginn, þ.e. sem sagt rúmlega 1000 þegar þau fljúga frá ameríku með golfstrauminum til íslands, því þau fjúka bara áfram, en svo aftur á móti er metið rétt rúmlega 800km á klst þegar þau fljúga á móti vindi) Nema hvað, flugkonan gleymdi að taka á loft því hún var svo upptekin í því að tala við mig. Og ég man ekki afhverju en mér var hent út, sem ég var engan vegin sátt við. Svo stóð ég þarna út á miðri flugbraut þegar ég sé flugvélina taka á loft og þar næst hrapa til jarðar og allir um borð deyja.
Svo er allt í einu kviknað í flugstöðinni, og allir glóa og ég reyni að forðast þá en á erfitt með að hreyfa mig. Nema hvað, ég hitti einhverja stelpu og ég segi við hana "Hvernig slappstu? Ég hélt að ég hefði verið sú eina sem fór frá borði" Þá var húnsem sagt allt í einu ferðafélagi minn en ekki pabbi. Anywho, við förum og finnum okkur gistingu í ógeðslegu húsi,sem er ekki bara skítugt heldur er draugagangur þarna líka. Og engin húsgögn, ég reyni þá að leita að húsgögnum í öðrum herbergjum húsins sem ekki voru í notkun sökum mikils draugagangs. Er að sjálfsögðu skíthrædd en fer engu að síður inn í eitt herbergið þar sem ég kveiki ljósið en ljósið flöktir. Svo sé ég einhverja hreyfingu og segi "Halló, ertu þarna" "Hver er þetta" o.s.frv. o.s.frv. Þegar skyndilega er gripið um hálsinn á mér, ekki fast, en það er ekki sleppt og ég öskra "Hvað er þetta!! Hvað er þetta!!" "Þetta er mús" segir einhver. En ég hugsa með mér "Þetta er engin helvítis mús" og í því vaknaði ég. Jafn raunverulega snertingu hef ég aldrei fundið í draumi.
Ef þú bíður lægri hlut í glímu eða stympingum er það fyrir feigð, en ef þú vinnur máttu búast við veikindum
Það er lítið að marka þessar draumráðningar síður og bækur..

Að dreyma flugvél sem sveimar fyrir ofan mann er fyrir mikilli breytingum á lifnaðarháttum. Sé dreymandinn sjálfur að fljúga vélinni verður hann fyrir miklu láni í starfi sínu. Stríðsvélar sem losa frá sér sprengjur boða andstyggilegar fréttir. Að detta út úr vélinni er fyrir algerri kúvendingu á lifnaðarháttum þínum, hvort það er til hins betra eða verra fer eftir öðrum táknum draumsins.