Afþreyingar
Að finna sér eitthvað til afþreyingar er allt annað en sjálfsagður hlutur, því það sem er afþreying fyrir mann einn daginn getur verið kvöl þann næsta. Sum kvöld gæti maður látið nægja sér eitthvað á borð við bók og ljúffengt pressukönnukaffi eða freyðibað með freyðivíni og svo naglalakka neglurnar eftir á. Önnur kvöld gætu endað þannig að maður þyrfti að fara í bað eftir þau.
En spurning dagsins í dag snýst ekki um afþreyingar kvöldsins eða slagveðursins, heldur hvað er hægt að gera að degi til sér til dægradvalar. Ef við ímyndum okkur nú að við séum stödd á stór reykjavíkursvæðinu þá er eftirfarandi svona það sem mér dettur einna helst í hug akkurat þessa stundina:
1. Skoða í búðir
2. Drekka bjór
3. Fljúga erlendis
og þar með er listinn tæmandi.
Í næstu viku mun ég fara yfir hvaða kökur væri gott að baka um jólin og hvaða kerti henta hvaða aðventukransi.
Í þar næstu viku fer ég svo í það hvaða efni á ekki að hafa nálægt opnu kertaljósi og hve nauðsynlegt það er að hafa reykskynjara.
Á þrettándanum fer ég svo í það hvað ég vil alls ekki fá í jólagjöf
