Kökubakstur
Vegna tímaskorts þá hef ég tekið skref afturábak í kökubakstri. Ætli ég hafi í raun ekki verið að reyna að ferðast aftur í tímann, til þess að sjá hvenær ég breyttist og varð að þeirri manneskju sem ég er í dag. En því miður þá misheppnaðist tímaferðalagið mitt eitthvað örlítið og áður en ég vissi af var ég að hræra saman smjöri, vatni, eggjum og kökumixi frá Betty Crocker.
Svona líkt og að ætla að fara styttri leiðina en svo villast. Líkt og reyna að fjarlægja fullt af bollum af borði í einni ferð, en síðan missa þá í gólfið, líkt og þegar maður reynir að kynnast nýju fólki sem síðan misskilur allt sem þú segir og finnst þú óþolandi bara vegna þess að þú gast ekki verið þú sjálfur.
Síðan smyr ég kökuna með sætu súkkulaðikremi og skreyti líklegast með jarðaberjum. Líkt og þú myndir gera ef þú værir í heimsókn hjá tengdó.
World class style by the great Guðný
þú mátt vera sidekikið mitt
ég er alltaf ógó töff get alltaf bent á þig svona hvernig á ekki að vera því þú ert svo halló
ég er martha stewart (mínus fangelsi og allt það)
þú ert white trash betty crocker
ég er scarlett johnassen
þú ert amy winehouse
Athugasemdin þáttinn þinn: Mjög góður þáttur, ég ætla alltaf að vera full og uppdópuð alveg eins og Amy svo ég særist ekki þegar þú ert alltaf að segja hvað ég er halló.
Í lokaþættinum þá geturu sett mig í meikóver, það yrði töff.
eg vil ekki far'í meðferð nei nei nei

maður verður nú að fylgjast með tískunni
anyhow þar var eh rosaflottur kokkur að baka ....
hann bakaði betty croker muffins!!!!!!!!!!!
núna hef ég sko misst allt álit á þessum þætti og þar af leiðandi þér....
er núna ikea og rúmfatalagerinn orðin töff í innlit útlit?? og fólkið farið að klæðast nýjustu
tísku úr Hagkaup.??
ég á ekki til orð
spurning um að ljúka þessu bara og henda sér í sjóinn................ha erla