Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Whatever

22. október 2007 klukkan 20:24

Enska 503 kláraðist fyrir c.a. 2 vikum. Ég (og aðrir samnemendur) fengum frest út til 1.nóv til að klára verkefnið.
Allavega, þá ligg ég eins og skata hérna með tölvuna í fanginu að gera allt annað en að læra. Held að ég hafi troðið inn max fimm mínútum núna rétt í þessu og svaraði 1 spurningu. Þá hef ég í það heila eytt c.a. 30 mínútum síðastliðin mánuð. Í stað þess að læra læt ég allt fara í taugarnar á mér, ég svaf c.a. 40 klst fös, lau og sun og ég er búin að horfa á ömurlegustu þætti í heimi. Ég vil benda fólki að horfa á 7th heaven sem er hugljúfur þáttur á Skjáeinum um fjölskyldu sem samanstendur af Pabbaprest, mömmu sem missti mömmu sína, svakalega fyndinni 5 ára stelpu, gáfuðum og góðhjörtuðum 7 ára ljóshærðum strák sem öllum finnst þroskaður miðað við aldur, 14 ára stelpu sem lennti í hit and run og getur kannski aldrei aftur spilað körfubolta en fyrirgefur engu að síður stráknum sem keyrði á hana og c.a. 17 ára síðhærðum elsta bróður sem er ógeðslega hrifin af heyrnalausu stelpunni. Sjitt.. þessi þáttur er æði. Svo eru náttúrulega allir í kringum þetta fólk engu síðri.
Sá líka Ertu skarpari en skólakrakki sem er ömurlegur þáttur með hundleiðinlegum þáttastjórnanda og montnum krakkaandskotum!

Og nei, ég nenni heldur ekki að setja inn myndir frá Rússlandi.

 
Erla
og fjölskyldan á hund sem heitir Happy! gubbedígubb
#1
22. október 2007 klukkan 20:28
.. en þettta er samt besta síða í heimi http://cuteoverload.com/
#2
22. október 2007 klukkan 20:30
Þetta er retti andinn:) Pufffff bara gefa skýt í þetta allt!!!

Ji, hvað ég var ánægð með súkkulaðið í dag:)
#3
22. október 2007 klukkan 22:01
 
Böllur
Látt ekki svona Örli.
Þetta er bara alveg eins og fjölskyldan þín!
#4
24. október 2007 klukkan 10:42
mér finnst að þessi þáttur eigi að heita hit and run
#5
24. október 2007 klukkan 23:07
 
Erla
Takk fyrir elsku tryggu lesendur,

Alltaf eru þið jafn hnyttin og yndisleg.
#6
25. október 2007 klukkan 11:28

Skrifa athugasemd