Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Ég og David Schomer

15. október 2007 klukkan 21:58
Hér sit ég með tölvuna í fanginu eftir að hafa komið heim úr óvæntri vinnu. Fór í dag til þess að mala baunirnar mínar sem ég ætlaði alltaf að smakka, lífrænt Gvatemala og svo venjulegt. Lennti svo í nokkrum kaffisamræðum, langa sögu stutta: Ég að horfa á Latte art vídjó í sjónvarpinu og svo á YouTube meðan ég drekk pressukönnukaffi úr nýja kaffibollanum mínum. Gæti kvöldið verið fullkomnara?



latte art

lífrænt gvatemala

pressukönnukaffi

nýlagað kaffi
DírisFrábćrar myndir! Kíkti Héđinn til ţín í heimsókn?
#1
15. október 2007 klukkan 22:47
 
Bellaer
Mmmm örlukaffi... uppáhaldið mitt

Næst þegar ég fer til útlanda ætla ég að panta flug á þinni vakt
#2
15. október 2007 klukkan 23:28
Já jummy kaffi:) Elskan ef ég myndi drekka kaffi þá myndi ég bara drekka það sem þú myndir bua til:)
#3
16. október 2007 klukkan 20:15
 
Erla
Maður fer bara hjá sér
#4
16. október 2007 klukkan 20:18
 
Guđný
Fallegar myndir hjá þér stúlka. Hvað á maður svo að setja mikið kaffi í svona pressukönnu miðað við vatnsmagn?
#5
16. október 2007 klukkan 21:54
 
Erla
Þegar kaffið er malað fyrir pressukönnur er það haft eilítið grófari en fyrir sjálfvirkar kaffikönnur. Við mælum með 5 Kata-skeiðum af kaffi í 1 lítra könnu (það er 8 bolla). Kaffið er sett í pressukönnuna og sjóðandi vatn hellt yfir. Gætið þess þó að sjóða vatnið ekki of lengi, því þá fer súrefnið úr því og kaffið verður ekki eins gott og ella. Hrærið vel í en rólega. Bíðið í 2-3 mínútur og þrýstið svo hægt niður. Njótið strax eða hellið á hitabrúsa.
#6
17. október 2007 klukkan 04:33
 
Jóna
Vá nú ætla ég að fara að búa til pressukönnukaffi...

En ég er ekki nógu góð í stærðfræði ég á nefnilega 3 bolla könnu held ég.
Smá vandamál
#7
19. október 2007 klukkan 00:09
 
Erla
5 skeiðar á 8 bolla. í 4 bolla 2,5 skeiðar. í Þriggja bolla.. 1,75? 1,5?
#8
19. október 2007 klukkan 11:09

Skrifa athugasemd