Besta súpa í heimi
Góðkunningi pabba minns á strák á sama aldri og litla frænka mín. Þess vegna fer pabbi nokkuð oft með hana í heimsókn þar sem krakkarnir tveir leika sér saman. Þennan strák á vinur pabba með konu af erlendum uppruna, hún hefur alist upp í allt annari menningu heldur en við og skilur líka mjög litla íslensku.
Einn dag þegar pabbi var með frænku mína í heimsókn hjá hjónunum kallar konan á börnin "Krakkar, súpa!" Börnin tvö þutu inn í eldhús og byrjuðu að gæða sér á súpunni. Eftir smá stund þá fer pabbi inn í eldhús og sér litlu frænkum mína háma í sig súpuna líkt og hún hafi ekki fengið að borða svo mánuðum skiptir. Þessi súpa var mjög girnileg í útliti, gul að lit með muldu brauði yfir. "Er þetta heimatilbúin súpa?" spyr pabbi. "Af hverju?" spyr konan. "Nú, vegna þess að þeirri litlu þykir súpan svo rosalega góð. Ég verð að búa svona til handa henni heima!" Konan svarar "Þetta er bara pakkasúpa, þessi hérna" og réttir fram Euroshopper Bernaise sósu.

En hei hvar varst þu í gær????????? Eg kom og spurði eftir þer og þú varst ekki á svæðinu:(