Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Klukkan - The Never ending story

23. febrúar 2007 klukkan 23:30
Hún tifar og tifar endalaust, daginn út og inn. Hún tifar mest þegar minnst er um læti. Þá lætur hún vel í sér heyra. Yfir daginn er þessi ljóta klukka ekki eins mikið í sér heyra, þá er eins og hún verði frekar sjálfmeðvituð um ljótleikann. Hún þorir ekki að tifa eins hátt í kringum hinar flottu klukkurnar. Eins og henni finnist að hinar klukkurnar séu fallegri en hún og hún sé minni klukka fyrir vikið. Hún hefur áttað sig á því. að þegar að öllu er á botninn hvolft og þrátt fyrir að fólk hafi þvertekið fyrir það, þá er innri fegurðinn ekki nóg.

Skrifa athugasemd