Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Heimsókn frá fortíđinni

19. febrúar 2007 klukkan 19:35

Það var um kvöld eitt í byrjun veturs er hún fór í heimsókn.
Heimsóknin hennar var áætluð stutt.. en fór langt fram úr áætlun.
Þar var drukkið vodka í pepsi.
Og þar voru drukknir þónokkrir bjórar
Áður en hún vissi af var klukkan slegin þrjú.
Tími til að fá sér smá kríu.
Tveim dögum seinna gerði hún sér grein fyrir því að veskið hennar væri horfið.
Hún leitaði hátt og hún leitaði lágt. 
Hún fór langt út fyrir bæjarins mörk.
En hvergi var veskið að finna.
Hún gafst upp.
Endanlega. 

Veturinn leið.
Langur var hann.
Kaldur smá, og blautur mikið. 
154 dagar liðnir, síðan hún sá veskið.
En allt í einu, svona upp úr þurru, án þess að vera með hugan við veskið góða
Rak hún augun í eitthvað kunnuglegt.
 
Augun opnuðust upp á gátt.
En hakan rakst í kalt, þurrt malbikið. 
Hönd hennar seildist eftir því sem virtist svo óraunverulegt en samt svo nálægt. 
Hún teygði hönd sína aftur í tímann.

 
Irma Rán
Fannstu veskið?
#1
19. febrúar 2007 klukkan 23:14
 
Erla
Ég fann veskið :)
#2
20. febrúar 2007 klukkan 20:32
 
Bölla
Töff veskisfinnulýsing samt... fékk alveg töffhroll þarna í endann...
25 töffstig frá mér
#3
20. febrúar 2007 klukkan 22:16
 
Erla Ofurtöff
Ohh takk fyrir það
#4
21. febrúar 2007 klukkan 19:37

Skrifa athugasemd