Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Hvers á ég að gjalda?

03. febrúar 2007 klukkan 04:21
Eitthvað sem er mér meðfætt, og hefur einungis aukis með árunum, er frestun á hinu óumflýjanlega. Mér þykir hálf leiðinlegt að það að fresta einhverju (Eða eins og uppáhaldsorðið mitt í ensku, procrastinate) sé endilega neikvætt. Af hverju er frestun ókostur? Ég þarf að vera búin að þrífa f....... herbergið mitt fyrir mánudaginn.

Síðan hvenær var það ókostur að sofa í 10 mínútur í viðbót?
Síðan hvenær var það ókostur að leggja of seint af stað?
Síðan hvenær var það ókostur að nenna ekki að læra heima?
Síðan hvenær var það ókostur að nenna ekki að taka til?
Síðan hvenær var það ókostur að fresta því að spara um einn mánuð enn?
Síðan hvenær var það ókostur að borða eitt súkkulaðistykki enn?
Síðan hvenær?


Hver ákvað það að "Á morgun segir sá lati" væri rétt?  Ef ég fengi að ráða þá væri það: "Á morgun segir sá sem hefur eitthvað betra að gera heldur en þú, fáviti"
 
Belja
Því A- fólkið ræður heiminum. Það vaknar fyrr en við B-fólkið og ákvað þetta sem sagt á undan. Á meðan við sváfum og gátum ekki mótmælt harðlega.
#1
03. febrúar 2007 klukkan 22:11
 
Belja
Svo er það held ég " hvers á ég að gjalda?"
#2
03. febrúar 2007 klukkan 22:37
 
Nobody
Takk fyrir ábendinguna. Skilaboðunum hefur verið komið áleiðis.
#3
03. febrúar 2007 klukkan 23:23
 
Jóna
Ef það væri ekki ókostur við neitt af þessu þá væri maður að njóta lífsins.....
#4
04. febrúar 2007 klukkan 17:15
 
Erla
Ókei.. er eitthvað að því?
#5
04. febrúar 2007 klukkan 23:48

Skrifa athugasemd