Örl - Pćlari međ meiru
02. febrúar 2007 klukkan 00:05
Mér líður hálf partinn eins og að ég sé nýrík. Er búin að vera að eyða peningum hægri og vinstri, keypti mér myndavél, skuldlaus, fer út að borða og snæði ljúffengan kvöldverð með pepsi. Svo ekki sé minnst á það að brátt verður herbergið mitt troðfullt af húsgögnum.
Eins gaman og það er að eiga myndavél og svaka flotta bolla til að drekka kaffi mitt upp úr í náinni framtíð, þá held ég að það sé samt ekkert spes að vera filthy rich. Til hvers á maður þá að hlakka? Ef maður fær allt upp í hendurnur án nokkurar fyrirhafnar, hversu spes er það?
Eva sambýliskona Blendu
úps, ég var að gefa þér ráð í sambandi við myndavélakaup á síðunni hennar Bellu og sé það núna að það var of seint í rassinn gripið. En til hamingju með nýju myndavélina ;)
#1
02. febrúar 2007 klukkan 04:57
Erla
ohh thanks a million. Ég keypti mér nú myndavél innan við sólarhring eftir að ég fór að pæla í því að kaupa mér myndavél, þannig að undir venjulegum kringumstæðum þá hefðiru nú ekkert verið of sein. Takk fyrir ráðið, vinkona.
#2
02. febrúar 2007 klukkan 05:44
