Klukka - The Saga Continues
26. janúar 2007 klukkan 02:55
Klukkan byrjaði upp úr þurru að tifa um daginn. Fannst það frekar furðulegt. Svo næst þegar ég vissi var hún hætt, líkt og sólin hættir að skína er sólarmyrkvi á sér stað, ellegar ljósið sem tunglir kastar frá sér sést ekki sökum tunglmyrkva. Líkt og neistar í fyrrum innilega ástríðufullu ástarsambandi slökkni. Líkt og í sömu andbrá er líf fjarar út verður líf til, þó ekki væri nema í öðrum heimi. Svipað og dagur verður nótt, eða nótt verður að degi. Líkt og þú kveikir á sjónvarpinu, í hinu svartasta skammdegi og rafmagnið slær út. Líkt og kerti sem brann til síðasta vaxdropa.
Jóna
Ég held að ég hafi náð þessu
#1
26. janúar 2007 klukkan 04:35
íris
ég er ekki viss er að pæla í að lesa þetta aftur yfir....
#2
30. janúar 2007 klukkan 04:43
