Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Tryggingar

24. janúar 2007 klukkan 03:22
Var að fá símtal frá Sjóvá. Af einhverri ástæðu þá verð ég alltaf óhemju dónaleg fyrstu mínútur af spjallinu. Hreyti einhverjum orðum framan í karlana og konurnar um það að ég sé að fara að vinna eldsnemma í fyrramálið og hafi engan áhuga á því að ræða þetta. En þetta fólk er frekar sniðugt og tekst einhvernvegin að fá mig til að slaka aðeins á þar sem ég á því næst örstutt samtal við þau.

Málið er það að ég nenni ekki að tala við þetta fólk. Hvað á ég að gera við hinar og þessar tryggingar þegar ég á ekki neitt? Ég á ekki börn, innbú, híbýli, fartölvu, framtíð. Á bara bíl. Og kerti. Svo finnst mér merkilegt hvaða skyndilega áhuga þeir hafa á því að bjóða mér líftryggingu. Ég ætti kannski að tilkynna það að ég væri ýmist með banvænan sjúkdóm eða þá í sjálfsmorðhugleiðingum?
 
Belja
Fáðu þér sjúkdómatryggingu. Það er sniðugt. Þú getur nebbla ekki fengið hana t.d. eftir að þú færð frumubreytingar. Mar tryggir ekki eftir á ha!
#1
25. janúar 2007 klukkan 05:53
 
Erla
Þýðir það að ég þurfi að gangast undir læknisskoðun og því fylgir blóðprufa? Ég nefnilega meika ekki nálar, ég myndi fara að hágrenja
#2
26. janúar 2007 klukkan 00:35

Skrifa athugasemd