Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Neytendafélagið ehf

16. janúar 2007 klukkan 01:24

Hér á árum áður man ég eftir því þegar mamma var alltaf að hringja í Neytendafélagið þegar hún var eitthvað ósátt við hluti. Eins og kókópöffs eða hnetupoka og slíkt.
Í dag verð ég að gerast kjélling og kvarta. Þannig er mál með vexti að ég var í Samkaup, eina ástæðan fyrir því að ég fer þangað er út af úrvalinu sem þeir eru með, svo ekki sé minnst hversu nálægt.
Allavega, ég var að vinna í þessari verslun fyrir þónokkrum árum síðan og man ég eftir því að aldrei voru fleiri en 4 sem biðu við hvern kassa, þá var kallað á auka manneskju. En þannig er því ekki háttað í dag. Það voru fokkings 2 kassar í gangi og röðin náði framhjá fokkings fatadeildinni. Mér var skapi næst að fleygja draslinu sem ég var með í gólfið og versla annars staðar. Nema að það var ekkert víst að það væri til í hinum búðunum plús það að ég hefði verið alveg jafn lengi að keyra út í hinar búðirnar og velja draslið allt aftur.
Og nei, sagan er ekki alveg búin. Svo voru alltaf einhverjir rítharðar, kellingaálftir og gamalmenni að troða sér fram fyrir í röðina. Ég er nú ekki svo dónaleg að ég skipi þeim aftast í röðina.
Akkurat núna, og þó mun meira áðan, væri ég alveg til í að boycotta þessa blessuðu verslun. Nema að ég hef ekki fjárráð né tíma í það að keyra í Hagkaup í hvert sinn sem mér vantar eitthvað.

Þetta hlýtur að hafa verið eitthvað tilfallandi. Yfirleytt er eki svo löng röð þarna held ég. Auk þess megum við alls ekki við því að missa verslun eins og Samkaup úr "héraðinu". Svo að - ekki hætta að versla þar!
#1
16. janúar 2007 klukkan 02:41
 
Erla
Svona löng röð var tilfallandi. En ég hef aftur á móti margoft lent í því að standa þarna í röð í allt að 15 mínútur. Mér finnst það óásættanlegt þegar þeir láta fólk bíða svona meðan einungis 2-3 kassar eru í gangi. Myndi alveg sætta mig við langa röð og bið ef að því væri ekki viðbjargandi, eins og að 4 plús kassar væru í gangi og brjálaður fjöldi fólks í búðinni. Ég skil alveg að þeir séu ekki með fleiri kassafólk en það. En ég ætla ekkert að hætta að versla þarna, allt of mikið úrval til að ég gefist upp á þeim þar til eitthvað annað betra kemur í héraðið
#2
16. janúar 2007 klukkan 02:47
Heyrðu, ég veit að þú tókst myndina af kaffibollanum (og gerðir örugglega sjálf þennan fína cappuccino), en þetta súkkulaði þarna í miðjunni - jömmí! ;) Er þetta þitt - þ.e. bræddir þú það og gerðir svona og myndaðir svo?
Allavega - mjööög girnilegt.
#3
16. janúar 2007 klukkan 02:49
 
Erla
jú ég gerði þennan cappuccino. En súkkulaðið fann ég einhversstaðar á netinu.
Thank you very nice.
#4
16. janúar 2007 klukkan 03:13
 
Jóna
Talandi um kassafólk. ég var í Kaskó áðan og þar var stelpa að afgreiða. og svo kom röðin af mér og hún var byrjuð að afgreiða mig. Þá kemur konan sem var á undan mér og segir: Eigið þið nokkuð páfagaukafóður? Já segir stelpan og segir við hana og sagðist ætla a klára að afgreiða mig áður en hún færi og tékkaði á því. Því að hún var byrjuð af afgreiða mig. Svo segir konan aftur. Heyrðu viltu ekki sækja páfagaukafóðrið fyrir mig og koma með það? og það með hreytingi...

Er ekki allt í lagi? stelpan var á fullu að afgreiða aðra manneskju og gamla konan ætlaðist til að hún hætti því bara til að redda þessu fóðri fyrir hana og hvað svo ætli hún hafi svo ætlast til að hún myndi svo taka hana fram fyrir mig með að borga?
Held´nú alveg að sumt fólk megi aðeins slaka á. Mér hefði verið sléttsama ef að hún hefði verið að afgreiða gömlu konuna að hún hefði hlupið fram fyrir hana til að sækja þetta. En ekki á meðan hún væri að aðgreiða aðra. Sem hún reyndar gerði ekki.. hún kláraði að afgreiða og hljóp svo...

Vá mætti halda að Erla hefði skrifað þetta.....
#5
16. janúar 2007 klukkan 18:33
 
Erla
jii já. það er alveg eins og ég hafi skrifað þetta.
#6
16. janúar 2007 klukkan 19:13
 
Jóna
sko út af lengdinni.....
#7
16. janúar 2007 klukkan 20:44

Skrifa athugasemd