Giftingar
15. janúar 2007 klukkan 16:44
Það að gifta sig á að vera hamingjustund. Frá því þú segir aðstandendum frá því, játast þínum heittelskaða og svo, tugum ára seinna, deyrð.
Í Glæstum Vonum er þetta engan vegin þannig. Alveg hreint ótrúlegt, í öll þau skipti sem Ridge gifti sig og Eric gifti sig (oft sömu konunum sitt á hvað) Þegar Rick giftist Amber, (sem er núna ástfangin af littla frænda hans) þegar Deacon og Bridget giftust, (Deacon sem svaf svo hjá Brooke, móður Bridget) og svo núna þegar Nick og Bridget eru að fara að gifta sig. (Nick og Brooke sváfu líka saman)
Hvers þarf fólk að gjalda fyrir það eitt að vera ástfangið?
Belja litla
Greyið ég. Ég er alltaf ástfangin. Mér bara hreinlega leiðist þegar ég er það ekki. En ég ætla líka að sleppa þessum giftingum... Waste of money bara.
#1
16. janúar 2007 klukkan 00:16
Erla
Jii. Frá því ég var yngri hefur mér dreymt um þann dag er ég gifti mig. Einu sinni þá vafði ég alltaf sængurverinu utan um mig, líkt og það væri brúðarkjóll, setti svo koddaver á höfuðið líkt og það væru slör, og gekk því næst um íbúðina með pottablóm í stað brúðarvönds, og giftist stóra kaktusnum sem var einu sinni alltaf inn í stofu þegar við áttum heima í Hafnarfirðunum. Presturinn var að sjálfsögðu plötuspilarinn og gestirnir voru húsgögnin í stofunni. Ohhh þetta voru æðislegir tímar.
#2
16. janúar 2007 klukkan 01:14
