Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Líknardráp

07. janúar 2007 klukkan 01:48
Ætti að vera löglegt.

Annars er það helst að frétta að harður árekstur varð á einhverjum vegi einhversstaðar á Vestmannaeyjum. Mér brá ekki eins mikið við það og þegar áreksturinn gerist t.a.m. í Reykjavík. Vestmannaeyjar eru eins og útlönd, soldið eins og Pólland eða jafnvel Palestína. Og eins leiðinlegt og okkur þykir atvinnuleysið og morðin á saklausa fólkinu, þá tekur það ekki eins mikið á eins og þegar Sigga frænka Jóns sem er bróðir hans Benna sem vinnur með systur hennar Gunnu sem vinnur í sömu byggingu og ég var að deyja. Við erum öll svo harðbrjósta. 

Mér finnst stjörnuspáin mín frekar áhugaverð:
Meyja: Meyjuna þyrstir í líf. Það er sigurástand. Ef lystin er ekki nógu mikil finnur maður ekki hjá sér hvöt til þess að gera neitt. Tengsl þín við önnur jarðarmerki hjálpa þér til að finna fullnægju.

Ohh ég er að skrælna úr þorsta

OOhhuuuhhööhhh...
ég setti inn nýjann og feikilega spennandi dálk sem heitir matargagnrýni

Skrifa athugasemd