Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Forsetisráðherra Íslands

31. desember 2006 klukkan 17:12
.. er Geir H. Haarde. Sem væri nú ekki frásögunni færandi nema að ég hafði ekki hugmynd um það!  Ég sat bara hérna í makindunum að lesa visir.is þegar ég sé fyrirsögnina 'Halldór í hádegisviðtalinu á Stöð 2'  Ég ætlaði nú bara að athuga í sambandi við hvað, en þá er það ekki vegna forsætisráðherraembættisins. Heldur vegna þess að hann tekur við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar um áramótin. Hann lét víst af embætti sem forsætisráðherra 15. júní! Hahaha merkilegt hvernig þetta fór algjörlega framhjá mér, en samt vissi ég af hækkandi sorphirðugjaldi í Reykjanesbæ.
 
Belinda
Gleðilegt nýtt ár krúttíbollan mín... kiss kiss
#1
01. janúar 2007 klukkan 02:35
 
Erla
Svo var ég ekki einu sinni sú eina sem ekki vissi að Geir H. Haarde væri orðinn forsætisráðherra. OG mér var líka bent á það að hann er þriðji forsætisráðherrann á þessu kjörtímabili.. þannig að mér er víst viðbjargandi eftir allt saman
#2
01. janúar 2007 klukkan 19:49

Skrifa athugasemd