Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstaða: Einföld
  • Um mig: óákveðin, hvatvís, fljótfær, ógeðslega fyndin, geðveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Quality street, þó það sé ekki um nein gæði að ræða

26. desember 2006 klukkan 02:16
Hér á árum áður var alltaf étin heil ósköp af Macintosh-i (eða hvernig sem það er skrifað) um jólin. Macintosh Quality Street. Í því var einn og einn vondur moli. Svo kom tímabil þar það var sífellt verið að skipta um lit á pappír og lögun á sælgætinu, sem mér fannst hálf ruglingslegt. Í dag þá myndi ég aldrei sjást út í Bónus með 3kg dollu af Quality Street sem nú er framleitt af Nestle! Who would have known. Mér finnst Nestle standa sig vel í kókómjólkurduftinu og Smarties-inu.. en hitt hefur einhvernveginn farið fjandans til. Nú er það eina æta í boxinu appelsínukrókant molinn. Og auðvitað eru bara 5 stykki í öllu boxinu sem ég er búin að éta. Hvers þarf maður að gjalda? Ef að fríhöfnin hefði ekki gefið okkur Siríus konfektkassa þá hefði ég ekkert fitnað yfir jólin.

Ég held að í ár hafi ég fengið skemmtilegustu gjafir síðan ég man eftir mér. (man nefnilega ekkert sértstaklega eftir gjöfunum frá því þegar ég var yngri) Því í ár fékk ég alveg heilan helling af drasli sem ég get notað. Eins og kerti, lotion og ilmvatn, rúmföt og peninga sem ég á að nota til að kaupa mér sjónvarpsborð og hillueiningu. Ohh ég get ekki beðið eftir að flytja út. Þá á ég eftir að fá ennþá skemmtilegri gjafir eins og eldföst mót, hnífapör, vínrekka, glös, skreytingar, o.fl. o.fl. sem gefið er fólki þegar það fyrst flytur að heiman. En að sjálfsögðu yrði ég að halda dýrindis innfluttningspartý þar sem boðið yrði upp á ýmsa  heita og kalda smárétti, kökudrasl og öl eða gos fyrir gesti og gangandi.

Annars væri ég ógisslega geim í mandarínur núna. Eða þá romm & kók, freyðivín og líka bjór.
Haa?
Er Nestlé tekið við framleiðslu á Mackintosh?
Haaa?!
Ertu að flytja að heiman??!!! Hvert og hvenær og allt það?
#1
26. desember 2006 klukkan 18:00
 
Erla
Já, ég uppgvötaði það í gær þegar ég ætlaði að athuga hvernig mackintosh væri skrifað.. þá stóð allt í einu Nestle's Quality Street.
Nei, ég er ekki að flytja að heiman, a.m.k. ekki á næstunni. Er bara nýbyrjuð að spara.
#2
26. desember 2006 klukkan 18:13
 
Bella Rauða
og rauðvín... ekki gleyma því
#3
26. desember 2006 klukkan 23:16
 
Erla
þú mátt fá þér rauðvín
#4
26. desember 2006 klukkan 23:48

Skrifa athugasemd