Biography
Fáir hafa staðið sig jafnvel um árin og stöllurnar Súsí og Blunda. Frá því þær byrjuðu með dúettinn Sússa og Blunda (2006) hafa þær skemmt landanum manna best. Vegna mikillar fjölgunar í tónlistarlífi Íslands urðu þær hins vegar að leggja upp laupanna, aðdáendum sínum til mikillar mæðu, og finna sér eitthvað nýtt og spennandi viðfangsefni. Ekki vegna dvínandi vinsælda, heldur vegna umhyggju þeirra á litla fólkinu.. það var komi þeirra tími til að skína.
Eftir áralangar bloggnjósnir (þó sitthvoru megin á landinu) datt stöldrunum í hug að gerast spæjarar. Ekki leið á löngu þar til Sússa og Blunda byrjuðu með þáttinn Áttavita (seinna 2006) þar sem þær grófu ofan af, og undan, fíflum samfélagsins. Niðurlægðu þá og útskúfuðu frá þjóðfélaginu. Heyrst hefur að scum Íslands hafi allt flutt erlendis og sé að lemja mann og annann þar.
Ekki leið á löngu þar til teymið varð að hætta með þáttinn. Í þetta sinn ekki vegna keppnisaðila heldur vegna þvílíkra vinsælda og atvinnumennsku í uppljóstrun óþverans. Óþverinn hafði þornað upp, þær voru eins og svampur í polli, eins og túrtappi á lokastigi tíðarhringsins, eins og handklæði sem gleymst hafði á baðbrúninni meðan það var látið renna í baðið.
En nú í ár (síðasta mánuði ársins 2006) hefur verið gefin út þeirra þriðja bók, Láttu mig vera, mamma. Sem árituð verður fyrir utan Eymundsson í Kringlunni þriðjudaginn 19. desember milli 17:00 og 21:30
Einnig verða áritaðar fyrri bækur þeirra Ég hefði ekki átt að vera svona klædd og Ég man það ekki, ég var full.
Íslenzka Bókafélagið
hún hét " ég man það ekki, ég var svo full"
eða frekar skortur á innslátti
