Prófíll

  • Nafn: Erla Dögg Gunnlaugsdóttir
  • Netfang: frokenglamur@hotmail.com
  • Atvinna: Kaffi
  • Hjúskaparstađa: Einföld
  • Um mig: óákveđin, hvatvís, fljótfćr, ógeđslega fyndin, geđveikur söngvari... o.s.frv. o.s.frv.

Innskráningar kubbur

Hambó? ... eđa hambó?

16. desember 2006 klukkan 22:40

Fór rétt áðan 3 mín fyrir lokun út í ríkið til þess að kaupa bjór. Blótaði öllum fokkings fíflunum sem keyrðu ekki í 60+ km hraða alla leiðina. En ég náði þó í ríkið, með naumindum. Á leiðinni heim langaði mig allt í einu ekki heim svo ég opnaði einn bjór og drakk hann á leiðinni út í Innri Njarðvík þar sem ég ætlaði svo sem ekki að gera neitt. En síðan var svo mikill snjór á malarveginu, og ekkert fólk eða bílar svo mín var bara að taka hambó hægri og vinstri.. þó aðalega hægri. Held ég hafi tekið eina - tvær vinstri hambó. En engin hambó var fullkomin. Sumsé 180° - 360° snúningur. Glatað. En ég skemmti mér konunglega þar til ég tók eftir því að það voru einhverjir menn að vinna upp á þökum húsa. Þá fannst mér þetta smá vandræðalegt..

 
Sara
Erla Dögg varstu að drekka öl og taka hambó hægri vinstri þó aðalega hægri
uss susss susss
#1
18. desember 2006 klukkan 00:10
 
Sara
btw flott nýja lookið á síðunni :)
#2
18. desember 2006 klukkan 00:10
 
Earl with the pearl earring
Þú getur ekki dæmt mig, you don't know me!

Takk samt fyrir. Ég eyddi löngum tíma í því að setja þetta saman í Word. Og ennþá lengri tíma í það að fatta hvernig ég gæti breytt myndinni í .jpg skjal. Sem ég er að sjálfsögðu búin að gleyma núna.
#3
18. desember 2006 klukkan 00:38
 
íris,,,
guð minn góður ég myndi ALDREI vera í bíl þar sem bílstjórinn væri að sötra öl .. vildi bara koma þessu frá mér..
#4
18. desember 2006 klukkan 00:40
 
Earl with the pearl earring
Sammála! Sérstaklega ef viðkomandi myndi ákveða það að fara á Aðalstöðina og kaupa sér beikonloku
#5
18. desember 2006 klukkan 02:26
 
Umferđarstofa
Kæra Erla
Lögregla hefur verið látin vita af þessari færslu og þessu framferði þínu.
Af þessu munu verða eftirmálar.
Umferðin er ekkert grín.

Kveðja,
Umferðarstofa
#6
18. desember 2006 klukkan 03:04
 
Móđir Erlu Daggar
Ég hef tekið rækilega í rassgatið í stelpuskottinu og er hún núna á straffi! Hún má ekki fara út eftir 8 á kvöldin og bíllyklarnir hennar eru í minni vörslu
#7
18. desember 2006 klukkan 03:09
 
Lögreglan í Keflavík
Kær frú,

Það er því miður ekki nóg. Erla þarf að taka út sína refsingu eins og restin af landanum sem drekkur landa og leggur svo af stað út í umferðina.
#8
18. desember 2006 klukkan 03:22
 
Lögreglan í Keflavík
OG annað kæra frú,

Þú munt verða handtekin fyrir ofbeldi gegn börnum strax á morgun. Skammastu þín. Ofbeldi leysir engan vanda. Hann skapar einungis meiri. Ekkert skrítið að barnið drekki eigandi svo ofbeldishneigða móður.

Kona líttu þér nær!
#9
18. desember 2006 klukkan 03:24

Skrifa athugasemd